Ljósberinn - 01.12.1954, Side 5

Ljósberinn - 01.12.1954, Side 5
ljúsberinn 113 Kom til míns hjarta ó, Jesús. Kom til míns hjarta í dag. — Helgið Krist sem konung í hjörtum yð- ar, segir Guðs orð. En til þess eru konungar, að þeir stjórni og verndi. Eg held, að ég hafi sjaldan heyrt börn syngja af meiri hjartans fögnuði, en þessi japönsku börn, sem voru þó flest frá heiðn- um heimilum. — Næsta vers man ég líka, að efni til: Kom á mitt heimili ó, Jesús. Kom á mitt heimili í dag. Það var í Nagoya, að ég kom í fyrsta skipti á kristið heimili í heiðnu landi. Þegar við komum að dyrunum fór kristniboðinn, sem með mér var, að hrópa hástöfum: „Go menn a sai“ og aftur hærra .... Það var nefnilega siður í Japan að kalla í stað þess að berja að dyrum. — Áður en langt um leið kom þjónustustúlka til dyra, opnaði og lagðist um leið á hnén til hliðar, innan við dyrnar. Þegar við komum inn úr anddyrinu tókum við af okkur skóna. Japanir eru þrifnir og á gólfum hjá þeim eru strámottur, sem mundu slitna fljótt, ef á þeim væri gengið á tréskóm, sem Japanir nota og kalla „geita“. — Þá kom húsbóndinn á móti okkur út í anddyrið og heilsaði okkur, auðvitað á japanska vísu. Hann stóð fyrst teinréttur með hendur niður með hliðum, eins og maður, sem er að hefja leikfimisæfingar, beygði sig síðan fyrir okk- Ur djúpt og lengi og sagði: — Aringa do samaska. Okkur var boðið til sætis á gólfinu, enda voru engin húsgögn í stofunni. Japanir kreppa undir sig fæturna og sitja á iljum sér eða hælum. Þá var borið inn lágt borð og sett á milli okkar. Stúlka bar inn te og kökur og mjóa matprjóna til að borða með kökurn- ar. Á þessu ókunna heimili, í fjarlægu landi, fannst mér unaðslegt að vera. Mér varð þá hugsað til sálmvers, sem er oft sungið hér á landi og þið sjálfsagt kannizt við: Hve sælt hvert hús, er sinna meðal gesta þér sífellt býður heim, ó, Jesús kær. í húsi því er hátíð æ hin bezta, er heimsókn þína dag hvern öðlazt fær. Barn er oss fœtt, sonur er oss gefinn;, á hans herðum skal höfðingjadómurinn\ J hvíla. Nafn hans skal kallað: undraráð- \ gjafi, guðhetja, eilífðarfaðir, friðarhöfð- \ ingi. Mikill skal höfðingjadómurinn verða! og friðurinn engan enda taka á hásœti \ Davíðs og í konungsríki hans, til þess að \ reisa það og efla með réttvísi og réttlœti \ héðan í frá og að eilífu. Jes. 9, 6.—7. s y'.rW'WWWVWWJV^V^dWVWWWVW-WUNr Sá siður er í Kína, þegar haldin er ein stórhátíðin, að eitt kvöldið, þegar öll ljós hafa verið kveikt, eru allar hurðir látnar standa upp á gátt og útidyr líka. Fari maður svo út á götu, getur maður horft inn á hvert einasta heimili og séð alla dýrðina. En á allra fátækustu heimilunum eða þar, sem einhver er veikur, eru dyr lokaðar. Þar sér enginn inn. Gaman hefði verið að geta séð inn á upp- ljómuð heimili hvers einasta ykkar, núna um hátíðina. Það getur enginn. Og þó er einn, sem sér inn til okkar allra. Hann gleymir engu okkar, og þó allra sízt þeim, sem bágt eiga, Jesús Kristur frelsari okkar. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól, í Jesú nafni! Ólafur Ólafsson.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.