Ljósberinn - 01.12.1954, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 01.12.1954, Blaðsíða 6
114 LJDSBERINN JOLIN I SVARFAÐAKDAL Jráiaffa eftir iéra Jrl&ril Jri&ril. iion Hvergi man ég betur eftir jólunum en í Svarfaðardal. Þá mótuðust jólin inn í með- vitund mína. Ég var á fimmta árinu. Ég man eftir dög- unum á undan. Þá var allt í undirbúningi. Eitt kvöld var allt fólkið að skera út laufa- brauð. Allt var fullt af útflöttu laufabrauði í trogum. Allir piltarnir voru að skera út jólabrauðið, og dáðist ég mest að kökum pabba míns. Þær voru svo fallegar. Ég fékk að vaka fram eftir, og það var gaman. Ég var ýmist inni í baðstofu eða frammi í eldhúsi, þar sem verið var að steikja laufabrauðið í stórum potti. Feitin bullaði og sauð í pottinum. Það snarkaði og hvæsti í, svo að mér fannst það merkilegt. Ég var þó hálf hræddur við þennan óhemju ógang og læti, en ilminn lagði inn öll göngin. -fc Hlakkaði til jólanna Ég hlakkaði ákaft til jólanna og var að hugsa um, hvernig þau mundu líta út. Mér fannst þau væru einhver vera, sem kæmi gangandi inn göngin, en ég vissi, að þau voru ákaflega góð. Ég var að hugsa um, að ég þyrfti að gefa þeim eitthvað. Ég átti grænan kindarlegg, sem mér þótti vænt um. Það var reiðhestur- inn minn. Ég spurði mömmu, hvort ég ætti ekki að gefa jólunum legginn minn, er þau kæmu. Mamma sagði nei, því að þau hefðu ekkert gaman af leggjum. Ég varð hissa á þessu. Mamma sagði, að jólin væru dagar líkt og sunnudagur. En á jólunum kæmi Jesús, því að það væri afmælisdagur hans. Ég spurði, hvort Jesús vildi eiga legginn minn græna, en því neitaði hún og sagði, að það væri ekki hægt að sjá hann. Á því varð ég líka undrandi. Aðfangadagur rann nú upp, og ég var allt- af að spyrja, hvenær jólin kæmu. Loks var mér sagt, að þau kæmu um miðaftan, og þá yrði að vera búið að þvo mér og færa mig í fallegu fötin, og allt yrði að vera svo hreint. -fc Grenjandi hríð En veðrið' var vont þá um daginn, með grenjandi snjóhríð og miklu hvassviðri. Ég varð hræddur um, að Jesús mundi ekki koma í svona vondu veðri. Ég stóð frammi í skála hjá mömmu og pabba. Þau höfðu ljóstíru. Bylurinn lamdi utan bæinn. Allt í einu var eins og heyrðust þung fótatök á hlaðinu og svo hristist bæjar- hurðin eins og einhver vildi komast inn. Ég sagði við mömmu: — Ætli, að það sé ekki Jesús að koma. Hann kemur of snemma. Mamma sagði: — Það er bara óveðrið. Svo fórum við inn í baðstofu. Þar var nú tekið til að þvo mér, og svo var ég færður í nýja flík. Ég kunni miklu betur við gömlu fötin mín. Þau þótti mér vænna um. En vegna jólagestsins, sem ég átti von á sýndi ég engan mótþróa. Svo fóru piltarnir að koma heim úr fjár- húsunum allir fannbarðir. Þeir stöppuðu af sér snjóinn, og svo fóru þeir að búa sig. Loks var allt tilbúið.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.