Ljósberinn - 01.12.1954, Side 9
LJÓSBERINN
117
Á JÓLUNUM
Nú syngur engla :,: helgur her :,:
Því frelsarinn oss fœddur er.
:,: Sé Drottni dýrð :,:
Að lágri jötu :,: lausnarans :,:
Við komurn nú í kvöld til hans.
:,: Sé Drottni dýrð :,:
Vor góði Jesú :,: þökk sé þér :,:
þú komst, og ennþá ert þú hér.
:,: Sé Drottni dýrð :,:
Guðrún Guðmundsdóttir
frá Melgerði.
aftur, og þau treystu því, að bænir þeirra
yrðu heyrðar.
Nonni hrökk upp úr þessum hugleiðingum
við það að kallað var á hann. Það var móðir
hans. Hún stóð í bæjardyrunum og kallaði.
Nonni flýtti sér til hennar.
— Hvað get ég gert fyrir þig mamma?
— Sæktu fyrir mig eldivið út í skálann,
svo máttu víst bráðum fara að gefa kúnni
heytuggu og Jarp fer áreiðanlega að lengja
eftir sínum mat. Þegar þetta er búið, verður
víst mál að koma blessuðum kindunum í
húsaskjól.
Þannig leið dagurinn hver af öðrum hjá
Nonna og móður hans.
Daginn fyrir Þorláksmessu gerði ofsarok
og hríð af norðvestri. Sjórinn var eitt hvít-
fyssandi öldurót. Nonni sá strax um morg-
uninn, hvað verða vildi og lét þess vegna
enga kind út. Ekki var laust við, að hann væri
hálfmyrkfælinn, er hann var að gefa skepn-
unum. Veðrið hamaðist svo á húsinu, að það
hvein í öllu.
Um kvöldið, þegar Nonni og móðir hans
voru að borða kvöldmatinn, hrukku þau allt
í einu við og lögðu við hlustirnar. Það var
ekki um að villast. Utan úr hríðinni barst
ómur frá skipsflautu, sem var þeytt í ákafa.
— Ó, það vildi ég, að góður Guð gefi, að
þetta skip strandi ekki hér fyrir framan, því
að í svona veðri er ekki von um björgun,
andvarpaði móðir Nonna.
— Mamma, ég ætla niður að nausti, sagði
Nonni og stóð upp, ég ætla að vita, hvað
ég sé.
— Farðu nú varlega góði minn, og búðu
þig vel. Hlífðarfötin þín eru frammi í skúrn-
um.
Þegar Nonni var ferðbúinn, fór hann út
með olíulukt í hendi. Hann ætlaði varla að
komast á móti rokinu. Eftir því, sem nær dró
naustinu heyrði hann greinilegar til skips-
flautunnar. Skipið var auðsýnilega strandað
fram undan naustinu. Hann starði
lengi út í hríðina og komst að raun
um, að það væri strandað á svonefndum