Ljósberinn - 01.12.1954, Side 11
LJ DSBERINN
119
CCiffu,r'Áur Cjvt^jóixáioi'i.
KATAKOMBURNAR í RÓIVI
900 kílómetra Jarðgöng —
ic grafreitir og samkomustaðir
ir kristinna manna í fornöld
í byrjun aprílmánaðar 1953 ók morgunlest
frá Neapel til Rómaborgar með marga tugi
Islendinga innan dyra. Þetta voru farþegar
úr Gullfossi, og mun aldrei fyrr eða síðar
jafnstór hópur íslendinga hafa heimsótt
Rómaborg í einu. Eins og nærri má geta vor-
um við eftirvæntingarfull, því að fæst af
okkur höfðu komið á þessar slóðir áðhr.
Þegar við ókum inn í hina gömlu, frægu
borg, sáum við fyrst leyfar af geysimiklum
fornum borgarmúrum, og litlu síðar blöstu
við okkur rústir af tuttugu alda gömlum
byggingum. En þetta voru aðeins svipmyndir,
því að járnbrautarlestinók með miklum hraða
inn í nýtízku borg. Frá járnbrautarstöðinni
var farið með okkur í stórum bifreiðum til
gistihúsa, þar sem við gátum komið farangri
okkar fyrir og fengið í svanginn.
af þeim, sem var svo lánsamur að geta dvalið
þar í þrjá daga, og það var strax betra en einn
eða tveir. Við sáum stórar og glæsilegar
kirkjur og marmarahallir, skrautlegar högg-
myndir, fögur málverk í hundraða tali, forn-
ar byggingar, já margt og margt, sem minnti
á auðlegð og glæsimennsku liðinna alda.
í katakombunum
En einn daginn var okkur boðið að skoða
katakomburnar. Sennilega vitið þið ekki öll,
hvað katakombur eru. Það eru eiginlega
gamlir kirkjugarðar eða grafhvelfingar. Á
fyrstu öldum kristninnar sættu kristnir menn
miklum ofsóknum frá rómversku stjórnar-
völdunum og liðu píslarvættisdauða þúsund-
'Íf í Róm
Okkur voru nú fengnir leið-
sögumenn í hendur, sem áttu
að sýna okkur ýmislegt mark-
vert í borginni. En í Róma-
borg er margt markvert að
skoða, margt, sem borgin hef-
ur að geyma frá liðnum öldum,
allt frá Krists tímum. Það
myndi taka mörg ár að skoða
það allt til hlítar. En þar sem
við höfðum aðeins einn til þrjá
daga yfir að ráða, þá var að-
eins hægt að sýna okkur það
allra markverðasta. Ég var einn
Þarna eru katakoiriburnar í jörðu.