Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 13

Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 13
ljd'sberinn 121 á eftir leiðsögumanninum. Ég held, að ég hafi verið síðastur í hópnum, og naut ég því alls ekki birtunnar af þessu eina blysi fremur en hinir, sem aftast voru. En ég hafði verið svo hygginn að hafa með mér vasaljós, og gat ég því vel litast um. Beggja megin voru höggnar út smáhvelfingar eða ílangar holur í veggina, og voru þrjár hver upp af annari þarna, sem við fórum um. Þetta höfðu verið legstaðir hinna látnu. Okk- ur var sagt, að búið væri að taka burt öll bein úr þessum katakombum, en ég sá á nokkrum stöðum leyfar af beina- grindum. Áhrifarík heimsókn Péturskirkjan í Róm, stœrsta kirkja í heimi, er nú skammt frá katakombunum. Sumir vildu komast sem fyrst upp aftur, en aðrir vildu skoða meira. Ég á ekki gott með að lýsa tilfinningum mínum eins og þær voru þessa stundina. Áður hafði ég dáðst að glæst- um byggingum úr marmara og látið mér detta í hug, að menn hefðu yfirleitt notið lífsins í glampandi sólskini og baðhita við glaum og gleði, og þar hefði tæplega skuggi fallið á. Nú leitaði hugurinn ákaft 1800 ár aftur í tímann, og mér varð hugsað til þess hrjáða fólks, sem hafði gengið þessa sömu leið neðan jarðar á flótta undan gini ljónanna eða þá til guðsþjónustu, sem þeir urðu að halda í felum. En hve þessir móbergsveggir hefðu frá mörgu að segja, ef þeir gætu talað, og hvað voru þeir annað en talandi tákn um atburði, sem höfðu gerzt fyrir mörg hundruð árum. Öll þessi göng voru manna verk, og um það eru ekki neinar þjóðsögur, hvernig þau fyrst urðu til. Sagan greinir skilmerki- lega frá öllu, sem þjóðirnar við Miðjarðarhaf áttu við að búa á fyrstu tímum kristninnar. Og sagan endurtekur sig öld eftir öld, sí- feldur ófriður og ofsóknir. Enn þann dag í dag eru menn á sama stigi og fyrir 2000 ár- um að því leyti, að þá skortir kærleika og bróðurhug. Þegar við höfðum lokið göngu okkar í hinum dimmu göngum, komum við aftur út um sömu útidyrnar. Sólin skein í heiði og minnti okkur á, að heimurinn getur átt nóg af birtu og yl handa öllum. Eins og þið getið ímyndað ykkur, þá hafa svona heimsóknir misjafnleg áhrif á gestina. Samkoma kristinna manna í katakombunum.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.