Ljósberinn - 01.12.1954, Page 15

Ljósberinn - 01.12.1954, Page 15
ljósberinn 123 get alltaf séð hans bál, en það er erfiðara fyrir mig í dalnum. Við skulum róa í land. Þegar kænan kom að landi, fór Amat úr bátnum, en faðir hans reri aftur út á mitt vatn- ið og hóf veiðarnar á ný. — Ég neyddist til að kalla á þig, því að ég á nú þegar að leggja af stað með bifreið til Kuala Lumpur til að ná í næt- urhraðlestina til Penang, og ég hefi keypt jólagjöf handa þér, sem þú verður að fá, áður en ég fer, sagði Jim. — Það er leiðinlegt, að við skyldum ekki hafa stöð hér í nágrenninu, þá þyrftuð þið ekki að fara jafnlangt til austurs til að ná í lestina,-----hvað hefur þú keypt handa mér? Jim hló. — Ég átti í brösum með að fá peningana hjá pabba, því að honum fannst, að þetta væri kjánaleg gjöf. Komdu nú bara heim í strákofann, og þar færð þú að sjá gjöf- ina. Drengirnir tveir hlupu rösklega eftir þröngum skógarstígnum. Það var heitt í veðri og mollulegt, og aragrúi af skordýrum sveim- aði í loftinu; upp úr jörðunni uxu stórar gor- kúlur, og niður úr greinum trjánna héngu stórar breiður af brönugrösum. Þar sem stígurinn beygði, höfðu þeir næstum velt um koll gömlum Kínverja, sem kom þar í rólegheitum með gölt í fylgd með sér. — Amat, er faðir þinn heima? spurði hann og þreif í handlegg Amats. — Nei, svaraði Amat afundinn, hann er í veiðiferð og kemur ekki í bráð. — Þá fer ég heim til hans og bíð hans þar, hann fagnar því eflaust, svaraði Kín- verjinn og glotti um leið, svo að skein í svört tannbrotin í munni hans. Drengirnir flýttu sér sína leið, og er þeir náðu aðalveginum, spurði Jim. — Hvaðan þekkir þú hann? Ég hefi aldrei séð hann heima hjá þér. — Við síðustu tunglfyllingu kom hann og talaði lengi og illilega við pabba, og upp frá þeim degi hefur pabbi verið svo undar- legur, hann borðar næstum ekkert, og á næt- urnar er hann ekki heima. Jim horfði undrandi á hann. — Hvað hefst hann þá að í myrkrinu? spurði hann. — Ég hefi ekki hugmynd um það, en í nótt ætla ég að læðast á eftir honum og sjá, hvað hann er að gera. Þegar Amat kom aftur heim síðla dags, var gamli Kínverjinn að kveðja, en mamma hans var að ausa upp rjúkandi hrísgrjónin. Amat gekk rakleitt til hennar og sýndi henni stoltur kveikjarann, sem Jim hafði gefið honum í jólagjöf. — Þetta er stormkveikjari, sagði hann hróðugur, og nú þarf ég ekki framar þess- ar óláns eldspýtur, sem alltaf slokknar á. Gamli Kínverjinn var lagður af stað út eftir stígnum, en nú sneri hann sér við og sagði: — Mundu eftir 28. mílu-steininum. Faðir Amats stóð kyrr og horfði fram fyr- ir sig, en móðir hans sagði, að maturinn væri tilbúinn. Þau settust að snæðingi, en faðir hans gat ekkert borðað. Undir eins og myrkt var orðið, stóð hann upp, tók stormljósker og eldspýtnastokk og fór af stað út þröngan stíginn, sem lá til skógar. Amat hikaði stundarkorn. Móðir hans var önnum kafin við uppþvottinn og tók ekki eftir honum;

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.