Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 16

Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 16
124 LJDSBERINN þá læddist hann. á eftir föður sinum, og naktir fætur hans ullu engum hávaða á mjúkum stígnum. Brátt huldi skógurinn þá, og þar var eng- inn kostur að ferðast utan við stíginn, því að runnar, greinar og frumskógarplöntur flétt- aðar vafningsjurtum mynduðu þéttan, græn- an vegg til beggja handa. Oft heyrði hann skrjáfur umhverfis sig — öðru hvoru heyrð- ust dýrsöskur í fjarska eða hvæs frá slöngu rétt við véginn. Það var niðamyrkur inni í skóginum, og Amat hélt sig eins nærri föður sínum og hann þorði, því að dauf birta frá ljóskeri hans var eina ljósið í myrkrinu. Er þeir höfðu gengið í klukkutíma eða svo, vék faðir hans inn á breiðari braut, sem var troðin af villtum fílum. Allt í einu kom Amat í hug orð gamla Kínverjans — — 28. mílu-steinninn; hann stóð sunnan við brúna hjá Tinnoh. Það fór hrollur um Amat af skelfingu — skyldu þorpararnir ætla að sprengja brúna í loft upp? Það gat ekki átt sér stað, því að slíkt þorparabragð mundi sameina alla Malayja og Evrópumenn í gegn þeim. Nú fóru að sjást dreifðar ljósglætur inn á milli trjástofnanna, og lágar fyrirskipanir heyrðust inni í skóginum, en þær voru bland- aðar mási og stunum. — Flýtið ykkur að lyfta síðustu teinunum, heyrðist sagt hásri röddu, — hraðlestin hlýtur að fara að koma. Amat læddist skjótt áfram, faðir hans var horfinn. Hann gat greinilega séð, hvað Kín- verjarnir höfðust að. Þeir voru að leggja hliðarspor gegnum skóginn. Nú skildi hann, hvað faðir hans hafði verið að gera á næt- urnar. —Ó, þessir slæmu menn, hugsaði Amat og lá við örvilnun. í stað þess að aka yfir brúna milli Tinnoh og Tapah, mundi hraðlestin fara eftir víxlsporinu gegnum skóginn, keyra fram af klettunum og hrapa í ána. Hann stóð sem steini lostinn af hræðslu, og hann sá föður sinn ganga til gamla Kínverjans. — Ég hefi klippt símaþræðina í sundur á fjórum stöðum, eins og þú sagðir mér að gera, sagði faðir hans. Hvernig átti nú Amat að fara að því að gera hrað'lestinni viðvart, áður en hún steypt- ist í opinn dauðann? Hvernig átti hann að bjarga Jim, föður hans og móður og öllu hinu fólkinu? Það var aðeins ein leið — bál á miðjum teinunum, — en hvernig ætti hann að sleppa óséður fram hjá Kínverjunum? ' Hjarta hans sló svo ört, að við lá, að það spryngi, er hann læddist hljóðlega og með gætni frá einu tré til annars. í bjarmanum frá ljóskerinu sá hann Kín- verjann gamla, sem lá á knjánum og var að festa rær á bolta. — Þú beitir engum brögðum, hvæsti sá gamli önugt, þú hefur alltaf gert allt, sem þú getur, til að seinka verkinu. í sömu mund kom ungur Kínverji hlaup- andi og másaði út úr sér: — Símalínan hefur ekki verið rofin. Ég hefi heldur aldrei treyst þessum heimska Malayja. í næturkyrrðinni gat maður nú greinilega greint óm frá hraðlestinni. — Þú ætlar ef til vill að aðvara þá, spurði gamli Kínverjinn og gretti sig ógnþrunginn á svip. — Já, svaraði faðir Amats, slíkar starfs- aðferðir eiga ekki við Malayja. — Félagar, öskraði gamli maðurinn, bind- ið hann og fleygið honum inn í skóginn í myrkrið og til villidýranna, svo að hvítu maurarnir geti sleikt bein hans. Hann mölbraut glerið á Ijóskeri Malayjans með einu sparki og tók frá honum eldspýt- urnar. Amat horfði skelfingu lostinn á, hversu hraustlega faðir hans barðist við Kínverjana, en ofureflið var of mikið. Þeir bundu hann á höndum og fótum og drógu hann burt. í uppnáminu tók enginn eftir Amat, svo að hann þreif ljósker föður síns og hristi það. — Það er ennþá eftir örlítið af olíu, muldr- aði Amat með ánægjuhreim, og nú skal ég kveikja bál, sem lýsir upp allan skóginn. Hann hljóp spölkorn eftir teinunum og byrjaði svo í ákafa að tína saman greinar og lauf, hellti olíu yfir það, og tók svo upp kveikjarann sinn. Reglubundnir dynkir í teinunum gáfu til kynna, að lestin var ekki langt í burtu, og að baki sér heyrði hann muldrið í Kínverjunum, sem sneru nú við, eftir að hafa borið föður hans inn í skóginn.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.