Ljósberinn - 01.12.1954, Síða 22
130
LJOSBERINN
U-
ÓOCjlA
Þegar fyrst var flogið yflr Erroasund
Ída (clvu' (Sjarnaien enduriaacÍL
Áður hefur, hér í Ljósberanum, verið sagt
frá tilraunum þeirra Wright bræðra við
byggingu flugvélar, er hefði sæmilega flug-
eiginleika, og frá því, er þeim tókst það.
Með æfingunni gekk þeim flugið betur og
betur, og smám saman endurbættu þeir flug-
vél sína, er þeir öðluðust meiri reynslu í þeim
efnum. Þeir tóku þá að sýna flug sitt á
ýmsum stöðum í Ameríku og Evrópu, og
urðu þær flugsýningar til þess að áhuginn
á flugi greip nú fleiri og fleiri unga menn
um heim allan.
■jc Frumstæðar vélar
Þessir áhugamenn gerðu tilraunir með
flug, og var í flestum tilfellum notazt við
heimagerðar flugvélar, sem voru nær því
eins mismunandi að gerð og útliti og menn-
irnir voru margir.
varir hennar, og hún beygði höfuðið í bæn og
þakkargjörð. Síðan stóð hún hljóðlega upp,
gekk til fröken Fraser og spurði:
— Fröken Fraser, má ég útbýta gjöfum
mínum nú?
— Gjöfum þínum, hvað átt þú við, var
það ekki brúða? spurði forstöðukonan undr-
andi?
— Nei, fröken Fraser, ég þurfti ekki brúðu.
Ég á eina. En sjáðu þessar greiður. Ég er
viss um, að þær nægja handa öllum börn-
unum, og kennurunum og einnig handa Chang
gamla.
í gegn um gleðitár leit fröken Fraser á
fulla öskju af greiðum í öllum regnbogans
litum, gular, rauðar, grænar og bláar.
Su Ling byrjaði að útbýta gjöfunum og
rétti hverjum eina greiðu. Hvílik hrifning.
Hreyflarnir voru einnig mjög svo frum-
stæðir. Það var talið sérstakt fyrirbæri, ef
hreyfill í þessum vélum gekk lengur en 15
mínútur án þess að stanza. Þess vegna voru
eins og gefur að skilja, ekki farin nein lang-
flug, og menn héldu sig að mestu leyti yfir
þurru landi, því að enginn vissi, hvenær lenda
þyrfti í flýti, til að gera við eitt og annað,
er aflaga fór. Þessar lendingar tókust ekki
alltaf vel, flugvélarnar brotnuðu og flug-
mennirnir meiddust. Stórslys urðu þó alls
ekki eins oft og menn gætu haldið, þegar
litið er á hinar ófullkomnu flugvélar, sem
flogið var á í þá daga. Þær voru sem sé afar
hægfara og hjálpaði það mikið til við, að
slysin urðu ekki ætíð hættuleg.
Einna fremstur í hópi þessara nýbökuðu
flugmanna var Frakkinn Louis Bleriot, er tók
sér snemma fyrir hendur að smíða sér flug-
vél. Fyrsta flugvél hans var þannig gerð,
að hún baðaði vængjunum, eins og fugl. —
Stærsti galli þessarar flugvélar var sá, að
Og þegar Chang gamli fékk sína greiðu, þá
stóð hann upp og greiddi hár sitt svo ein-
kennilega, að öll börnin fóru að skellihlæja.
Allt næsta ár, þegar hrísgrjónin voru á
þrotum eða annað varð til þess að valda á-
hyggjum, þá þurfti ekki annað en að ein-
hver segði:
— Mannstu greiðurnar, og allar áhyggjur
voru um leið á bak og burt, því að sá Guð,
sem gat gert þetta, sem hann gerði fyrir
Su Ling, gat áreiðanlega einnig leyst annan
vanda.
En það', sem barnið vis$i ekki var, að í
mistökum hafði stúlka ein í Ameríku haft
skipti á tveim bögglum. En Guði urðu engin
mistök á, þegar hann sá svo um, að askjan
með marglituðu greiðunum var send til Su
Ling í Shanghai. Guð vissi, hvað senda skyldi.