Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 23

Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 23
ljdsberinn 131 hún gat ekki flogið! Er hinum stóru vængj- um hennar var baðað upp og niður, voru átökin svo mikil, að hún liðaðist sundur, og gafst Bleriot fljótlega upp á þessari tegund flugvéla. Flugvélasmíði Bleriots Næst byggði hann sér tvíþekju. Reyndi hann fyrst að ná henni til flugs af vatni, en það tókst ekki, hvernig sem hann reyndi. Var það eflaust því að kenna, að hreyfillinn var of kraftlítill, og vatnið veitti of mikla mótstöðu. Þegar Bleriot mistókst að ná vél- inni til flugs af vatni, þá hugsaði hann sem svo, að það hlyti að takast af landi. Hann setti því hjól undir vélina, og nú tókst allt betur, vélin flaug. Hann reyndi margar aðrar tegundir af flugvélum og tókst einnig að koma þeim á loft, en sá galli var á gjöf Njarðar, að þessar flugvélar brotnuðu undantekningar- lítið í fyrstu lendingunum. En Bleriot hélt áfram að byggja og brjóta, og fékk hann brátt það orð á sig, að hann væri sá flug- maður, sem hefði eyðilagt flestar flugvélar af samtíðarmönnum sínum. •fc Áræði Bleriots Bleriot hugsaði sem svo: Sá maður, sem er kaldur og rólegur, þegar hættan steðjar að í flugvél, hefur miklar líkur til að komast lif- andi af. Það ríður á að hugsa aðeins um að bjarga sjálfum sér, en ekki flugvélinni, það þýðir ekkert að reyna að bjarga hvoru- tveggja. Eitt sinn, er hann varð að nauðlenda við erfiðar aðstæður, stökk hann upp á vænginn, um leið og flugvélin snerti jörð. Þetta voru síðustu forvöð, því að vélin brotnaði í spón, en Bleriot skreið ómeiddur út úr brakinu. Er Bleriot hafði byggt og eyðilagt 10 flug- vélar, var hann kominn í fjárþröng. Hafði þetta kostað hann sem svaraði hátt á aðra milljón íslenzkra króna, og var nú farið að minnka ískyggilega mikið í peningakassanum. Það, sem hafði hjáipað honum hingað til voru peningar, er hann hafði fengið fyrir upp- götvun nokkra, er hann hafði gert endur fyrir löngu. Nú voru góð ráð dýr. Þá var það, árið 1909, að enska blaðið Daily Mail hét hverj- um þeim manni, í verðlaunum upphæð, sem svarar til tæpum sjötíu þúsund íslenzkra króna, er fyrstum tækist að fljúga yfir Erma- sund. Þarna sá Bleriot sér færi á að ná í pen- inga til þess að geta haldið áfram tilraunum sínum,og einsetti hann sér nú að vinna verð- launin. Hann byrjaði umsvifalaust að búa sig undir þrekraunina, og er hann þóttist vera tilbúinn, ákvað hann að leggja af stað. Keppinautur En brezkur maður, að nafni Hubert Lath- am, hafði fengið sömu flugu í höfuðið, og það sem verra var, honum hafði dottið þetta í hug á undan Bleriot. Hin 19. júlí 1909 hóf Latham sig til flugs frá hömrunum við Calais í Frakklandi, og brátt sveif hann yfir sundið í 125 metra hæð. Þessi flugferð varð þó ekki löng. Er hann ætlaði að hækka flugið skömmu seinna, bilaði hreyfillinn, svo að hann varð að nauðlenda á sjónum. Hubert Latham var rólegur náungi og lenti prýðilega á sjónum. Þegar fylgdarbátur hans kom á staðinn til að bjarga honum, sat hann rólegur ofan á flugvélinni, sem maraði hálf i kafi. Hann hafði dregið undir sig fæturna svo, að hann vöknaði ekki. Þarna sat hann og reyndi að hugsa upp ráð til að ná í aðra flugvél sem fyrst, svo að hann gæti reynt aftur. Lagt af stað Tveimur dögum eftir að þetta gerðist, kom Bleriot til Cal-ais. Hann lagði samt ekki strax af stað yfir sundið. Hann dvaldi í Calais nokkra daga, athugaði veðurfar allt og beið hentugs veðurs til flugsins. Hinn 25. júlí ákvað Bleriot loks að halda af stað. Við sólarupprás kvaddi hann konu sína, setti hreyfilinn í gang og hóf sig til

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.