Ljósberinn - 01.12.1954, Síða 25
#/«* i i im Í etj t feröalag
□ ÖMLIL J□ LASAGA EFTIR AXEL BRÆMER
Það voru erfiðir tímar fyrir Kaupmanna-
hafnarbúa um jólaleytið 1658, því að sænski
konungurinn Karl Gústaf hafði ásamt her
sínum setið um borgina í fjóra mánuði. En
Friðrik 3. Danakonungur haf.ði svarið að
falla heldur en að gefast upp.
Jafnvel sjálft jólakvöldið gerðu Svíar
sýndarárás yfir ísilagðar virkisgrafirnar, sem
olli því, að menn urðu að vera undir vopnum
sjálfa jólanóttina, og margir neyttu jóla-
matarins í virkisgröfunum.
Nokkru áður en sýndarárás Svíanna byrjaði,
lét drengur nokkur sig renna til jarðar frá
útvirki því á víggirðingunni, sem kallaðist
Rósenborgarvígið. Hann læddist með var-
færni í áttina til sænsku framlínunnar.
Drengurinn hét Daníel, og var í vinnu hjá
Níelsen ferjumanni við Ulfeldtstorg. Hann
hafði fengið boð um það frá dönskum njósn-
ara, Seidelin að nafni, að móðir hans lægi
hættulega veik heima í Mörkhöj, og nú ætlaði
hann að reyna að sleppa í gegn um fylkingar
óvinaliðsins og ná heim, til þess að sjá móð-
ur sína einu sinni enn.
Nóttin var dimm, og það
var nístingskalt. Daníel
læddist út fyrir varðelda
Svíanna og slapp heilu og
höldnu í gegn um fremstu
framvarðalínuna. í stórum
krókum hélt hann áfram í
norðaustur, og hann komst
óséður yfir Brönshæð, þar
sem sænski konungurinn
hafði aðalstöðvarnar, og
beindi þá ferð sinni í áttina
til Mörkhöj. Að lokum hélt
hann, að hann væri kominn
yfir það versta. Þá var líka
komið miðnætti, og hann var
dauðþreyttur. Hann gekk þó
hughraustur áfram. Það
komst aðeins ein hugsun að
hjá honum, og það var að
komast heim til veikrar móður sinnar.
Skyndilega gekk sænskur hermaður fram
undan tré, þar sem hann hafði staðið í felum.
— Hver er þar? hrópaði hann, stanz eða
ég hleypi af.
Daníel heyrði smella í byssulás. Hann
snerist á flótta, en of seint. í sama vettvangi
greip varðmaðurinn hann og hélt honum
föstum. Rétt í því dró ský frá tunglinu.
— Þetta er þá aðeins drengsnáði, tautaði
Svíinn undrandi, hvað ert þú að gera hér?
— Ó, lofaðu mér að fara í friði, bað Daníel
hræddur, ég ætlaði aðeins heim til mömmu,
sem er veik heima í Mörkhöj.
— Það geta allir sagt, sagði hermaðurinn
reiður, hvaðan kemur þú?
— Frá Kaupmannahöfn.
— Frá hinni umsetnu borg, sagði Svíinn
forviða, hvernig gaztu sloppið gegnum
framvarðasveitir okkar?
— Með Guðs hjálp. Og ég er þess fullviss,
að ég hefði ekki lagt út í þetta, ef það hefði
ekki verið vegna mömmu. Ég fékk að vita
að hún er veik og þráir að sjá mig.