Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 27

Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 27
ljdsberinn 135 Ásta Björg SAGA í LJÓÐUM EFTIR VALD. V. SNÆVARR ÁSTA BJÖRG var iðjusöm, allt vill stúlkan gera. Alltaf sá hún ótal margt, er ei má „svona“ vera. Allt vill hún „laga“, hún Ásta litla B., — en annars segja ýmsir hún ósköp handóð sé. Ásta leggur blað á borð, byrjar svo að teikna, les á grúfu örfá orð, en ekki vill hún reikna. Námfús er ekki hún Ásta litla B. Annars segja allir, að ágæt telpa hún sé. Margt þarf Ásta að athuga, inniveran þreytir; þýtur út og öllu þá út í buskann þeytir. Hrædd er hún ekki, hún Ásta litla B., — öslar út á götu, þótt ófært veðrið sé. Litla Ásta læra þarf að lesa, skrifa, teikna. Stundum er hún ósköp löt, einkum þó að reikna. Margt á að læra hún litla Ásta B. Ekki vill hún amma að „ólærð“ stúlkan sé. Brúður sínar býr hún um, bindur um sára fingur, vaggar þeim í væran blund, vögguljóðin syngur. Ekki er barnköld hún Ásta litla B., enda segja allir að ágæt mamma hún sé. Ásta háttar glöð og góð, Guði bænir flytur. Mamma strýkur mjúka kinn, mamma á rúmstokk situr. Englana dreymir Ástu litlu B., enda segir amma, að englabarn hún sé. J

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.