Ljósberinn - 01.12.1954, Síða 30

Ljósberinn - 01.12.1954, Síða 30
138 LJDSBERINN ulinn, og þar fann hann skyrtur, treyjur, þrjá kyndla og marga aðra smáhluti. — Já, sagði forstjórinn, ég held, að þetta sé okkar eign. Ég er að minnsta kosti viss um skyrturnar, og hina hlutina getum við rannsakað bráðlega. Það er bezt, að þér farið með manninn til lögreglustöðvarinn- ar. — Drengurinn verður líka að koma með aftur, sagði lögregluþjónninn. — Hann er ekki útskrifaður. — Það er bezt, að við förum þangað allir, sagði forstjórinn, því að allir drengirnir þrír hafa eitthvað að segja. Þið, drengirnir þrír, getið farið fótgangandi, og við hinir ökum í bílnum mínum. Er það í lagi? spurði hann lögregluþjóninn. — Já, ef dregnirnir koma, svaraði hann. — Ég skal koma, sagði Ali glaður. — Ég lofa því, að ég skal koma. Lögregluþjónninn kinkaði kolli og tók Oko með sér inn í bílinn. Forstjórinn kom á eftir. Oko sagði ekkert, en hann leit reiðilega til Femis, áður en þeir óku af stað. Osanyin horfði á drengina þrjá og brosti til þeirra. Þeir voru allir mjög illa til fara. Jakob var með bólgna vör, Ali var allur rykugur eftir áreksturinn við Oko, og Femi var óhreinn eftir brunninn. En þeir voru mjög ánægður með sjálfa sig og brostu aftur á móti, svo að skein í hvítar tennurnar í svörtum andlitunum. — Það lítur út fyrir, að ég muni missa þig bráðlega, Jakob, sagði Osanyin. — Ég geri ráð fyrir, að þú viljir nú heldur vera með bróður þínum. Jakob kinkaði kolli. Hann var allt of glað- ur til þess að geta sagt nokkuð. — En þú þá, Femi, mundi þig langa til þess að koma og búa með mér og Ali í stað- inn? — Ó, já, sagði Femi. — Kæra þökk fyrir! — Við erum tilbúnir, Osanyin, hrópaði forstjórinn. Osanyin kinkaði kolli til Femis og gekk að bílnum og tók um leið upp böggulinn með þýfinu. — Við getum tekið hann með, sagði Jakob. — Nei, það er bezt, að við tökum hann með í bílnum — þið verðið að flýta ykkur, svaraði Osanyin, er hann gekk frá þeim. Drengirnir þrír horfðu á eftir bílnum, er Fyrir mörgum árum bjó guðrækin ekkja í stóru þorpi uppi í sveit. Hún átti fyrir þremur börnum að sjá, tveimur drengjum og einni stúlku. Meðan maðurinn hennar var á lífi, átti hún góða daga; þau bjuggu við ágæt efni, í ljómandi fallegu húsi, og kring- um það lágu frjósamir matjurtagarðar. En þegar maður hennar dó, þá skipti nú heldur um til hins verra; allar eigur þeirra, og húsið með, var tekið upp í skuldir og hrökk ekki til. Þau höfðu ekki búið að sínu, heldur annarra, og það fer aldrei vel, því allt af kemur að skuldadögunum. Ekkjan varð nú að hverfa frá öllu, húsi og fögrum görðum, og dýrlegum húsbúnaði, og setjast að í sveitaþorpinu. En hún bar þessar raunir sínar og vonbrigði með þögn og þolinmæði, því að hún vissi á hvern hún trúði, og hafði löngum sagt, að auðurinn væri valtastur vina. Oft lá nærri, að hún kæmist í bjargarþrot með börnin, en þegar neyðin var hæzt, þá var hjálp Drottins allt af næst. Þegar hún kom til vina sinna eða þeir til hennar, þá hafði hún allt af nógar sögur að segja frá því, hvernig Drottinn hefði hjálpað henni með ýmsu móti. Einu sinni leið að jólum. Pétur litli, yngsti sonur ekkjunnar, gekk í skóla, og í skólan- um heyrði hann stallbræður sína tala margt um Drottinn Jesúm Krist, og að þeir byggjust við að hann gæfi þeim eitthvað gott og fallegt á jólunum og um þær gjafir voru hann ók hægt niður eftir mjóum stígnum og sneri inn á veginn. — Bíðið þið svolítið, sagði Femi. Hann hljóp inn í húsið og kom aftur með Biblíu Jakobs. Og síðan gengu drengirnir þrír, með Jakob í miðið, mjög hamingjusamir niður eftir veginum og töluðu hver í kapp við annan. ENDIR. ------□-------

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.