Ljósberinn - 01.12.1954, Side 31

Ljósberinn - 01.12.1954, Side 31
LJDSBERINN þeir sí og æ að tala. Nóg var tilhlökkunar- efnið, mikil tilhlökkunargleðin hjá þeim. Einu sinni kemur Pétur heim og roðnuðu venju framar rósir á vöngum. Hann þaut í fangið á mömmu sinni og lagði hendurnar um hálsinn á henni og sagði: — Mamma, kemur Jesús ekki líka til okkar? Fáum við ekki líka eitthvað fallegt í jólagjöf hjá hon- um. Mamma hans klappaði blítt á glókollinn á honum og svaraði með tárin í augunum: — Ég held hann komi ekki með neinar þesskonar gjafir í þetta skipti. — Jæja, sagði Pétur litli, ég ætla þá að biðja hann um að gera það. Ég ætla að skrifa honum, þá kemur hann áreiðanlega. Og Pétur litli lét það verða meira en orðin tóm. Hann settist niður og skrifaði bréfið og utanáskriftin var svolátandi: — Til elsku jólabarnsins á himnum, og svo fór hann með bréfið og stakk því í næstu pósthirzlu. Mamma hans hugsaði með sér, að Guð mundi ekki misvirða þetta einlæga trúnaðar- traust litla drengsins síns. Um kvöldið voru bréfin tekin úr hirzlunni og borin inn í póststofuna. Þar voru þau lesin sundur, eins og lög gera ráð fyrir, til þess að hægt væri að bera þau þangað, sem þau ættu að fara. En þá varð heldur glatt á hjalla hjá póstþjónunum. Bréfhirðingamaðurinn tók eftir þessu og spurði, hvernig á þessari kátínu stæði. Þeir réttu honum þá bréf Péturs litla og spurðu hlæjandi, hvernig þeir ættu að koma því til skila. Bréfhirðingamaðurinn reif upp bréfið og las það. Það var svolátandi: Elsku jólabarn! Mamma mín segir, að þú komir víst ekki til okkar þetta árið. En ég ætla að biðja þig sem innilegast að koma til okkar og hafa þá með þér fallegt og nýtt spjald og skrifbækur, og þú mátt líka koma með jólaköku og fáeinar hnetur. Mér þykir undur vænt um þig og ég ætla alltaf að vera hlýðinn drengur. Þinn P é t u r. Það var auðséð að bréfhirðirinn komst við af þessu bréfi, tár komu fram í augu hans. Hann braut bréfið saman aftur og sagði: 139 — Ég verð að hafa upp á þessum Pétri litla. Þegar lokið var starfi á bréfhirðingunni um kvöldið, þá gekk bréfhirðir til kvöld- verðar með nokkrum vinum sínum, eins og hann var vanur. Hann sagði þeim frá bréfi Péturs litla og mælti síðan: — Ég vildi gefa fimm krónur hverjum þeim, sem vissi, hvar þessi drengur á heima. Einn af þeim, sem viðstaddir voru, þekti móður Péturs og hagi hennar og gizkaði á, að vel gæti verið, að þetta væri yngsti sonur hennar, hann hét Pétur. Bréfhirðir fór eftir þessu og það stóð heima; það var einmitt sá litli Pétur, sem bréfið hafði skrifað og sent. Nú kom aðfangadagskvöldið. Móðir Péturs var búin að skreyta ofurlítið jólatré og undir því lá dálítið af fátæklegum fatnaði, sem hún ætlaði að gefa börnunum. En gleði Guðs og friður fyllti hjarta hennar, þegar hún fór að segja börnunum frá jólagleðinni miklu. Ó, hvað augu mömmu ljómuðu þá! Síðan settust þau að kvöldverði. Þá rættist líka bókstaflega, að því er börn- in snerti, það sem skáldið kvað um móður sína: Mamma settist sjálf við okkar borð, sjáið, enn þá man ég hennar orð; Þessi ljós, sem gleðja okkar geð, Guð hefur kveikt, svo dýrð hans gætuð séð; jólagleðin ljúfa lausnarans, leiðir okkur nú að jötu hans. Síðan hóf hún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál. Aldrei skyn né skilningskraftur minn skildi betur jólaboðskapinn. En er lokið var máltíðinni, þá var drepið á dyrnar. Gamla og dygga vinnukonan hennar mömmu kom inn og bar stóra körfu á hand- leggnum, og var hvítt lín breitt yfir hana. Það kom einhver maður með hana, sem hvarf óðara, er hann hafði skilað henni. Hann var ekki að segja frá því hver hann væri eða hver hefði sent hann. Pétur litli var fullur eftirvæntingu allan aðfangadaginn. Hann sagði aftur og aftur við mömmu sína: Framh. á bls. 142.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.