Ljósberinn - 01.12.1954, Síða 34
142
LJÖSSERINN
LJÓSBERINN _____________________________
Barna- og unglingablað með myndum. —
Útgefandi Bókagerðin Lilja, — Ritstjóri
Ástráður Sigursteindórsson, kennari. —
Utanáskrift: Ljósberinn, Pósth. 276, Rvík.
Áskriftarsími 7811.
Kemur út sem svarar 12 siðu blaði á mánuði,
þar af tvöfalt sumarblað og þrefalt jóla-
blað. Áskriftargjald kr. 20.00. Gjalddagi
15. apríl.
Prentaður í Félagsprentsmiðjunni h.f.
□--------------------------------------□
♦ SVÖIt OG FLEIRA ♦
SVÖR VIÐ HEILABROTUM í SÍÐASTA BLAÐI
Þekkirðu konurnar? 1. Rebekka (I. Mós.
24,19), 2. Mirjam (II. Mós. 15,21), 3. Rut (Rut
1,16.), 4. Hanna (I. Sam. 1,27.-28.), 5. Drottn-
ingin af Saba (I. Kon. 10,7.), 6. Ekkjan í
Zarpat (Kon. 17,24).
Gáfnapróf: 1. Inn í miðjan skóginn, 2. blaut-
ir, 3. þrjú, 4. rani-krani, 5. hinn helmingurinn,
6. enginn, 7. tólf, 8. það voru faðir, sonur og
sonarsonur, 9. leðurblaka verpir ekki eggjum,
10. af því að þær eru fastar á fuglum.
SVÖR VIÐ HEILABROTUM Á BLS. 142.
Veiztu petta? Svörin getur þú fundið sjálfur
með því, að fletta upp í Nýja testamentinu eins
og hér segir: 1. Matt. 1,21., 2. Lúk. 1,37., 3.
Lúk. 1,80., 4. Lúk. 2,30., 5. Lúk. 1,46.
Hve gömul er Anna? Þegar Georg var eins
árs, hlýtur Anna að hafa verið fjögurra ára.
Hún varð þá tvisvar sinnum eldri en Georg,
þegar hann var þriggja ára. Þá er hún sex
ára.
Krossgáta:
Lóðrétt: 1. ær, 2. sal, 3. aska, 4. Óli, 6. afi,
7. 11, 8. tá, 10. ró.
Lárétt: 1. æska, 4. óra, 5. lak, 7. lít, 9. far, 11.
Áki.
★ ★ ★
Er maðurinn skapaður fyrir tóbak?
Allir vita að tóbaksneyzla er mjög skaðleg,
einkum fyrir unglinga.
Eitt sinn mun George Williams, stofnandi
K.F.U.M., hafa sagt, að Guð mundi hafa skap-
að manninn með nasirnar upp, ef hann hefði
ætlað honum að taka í nefið og með reykháf
upp úr höfðinu, ef hann hefði ætlað honum
að reykja!
★ ★ ★
Grobbinn skipstjóri: Hvort ég hafi nokkurn
tíma verið með skipi, sem hefur farizt? Já,
það held ég nú! Þegar ég var ungur og sigldi
með kútter Önnu, fórumst við þetta einu sinni
í mánuði, stundum var okkur bjargað, nú, og
stundum ekki.....
★ ★ ★
Jón Helgason, Bergstaðastræti 27, Rvík,
fyrrverandi ritstjóri Lljósberans óskar eftir
að kaupa 4. og 5. árgang blaðsins.
Jólabréf Péturs litla —
Framh. af bls. 139.
— Mamma, þú skalt nú fá að sjá það, að
jólabarnið kemur með eitthvað handa mér.
Ég skrifaði því, eins og þú mannst.
Móðir Péturs varð alveg forviða er hún
tók lokið af körfunni. Ofan á í körfunni lá
stórt blað og á það var skrifað:
— Til Péturs litla frá jólabarninu.
Pétur æpti upp yfir sig af fögnuði, klappaði
saman lófunum og hrópaði aftur og aftur:
— Ó, elsku góða jólabarn! Sko! mamma!
það hefir þá fengið bréfið frá mér. Marg-
falda, margfalda þökk, kæri herra Jesú!
Nú var farið að taka upp úr körfunni.
Fyrst kom gullfallegt spjald og skrifbækur
og jólabækur, eins og Pétur hafði beðið um.
En það var heldur meira. Þá kom ljómandi
falleg myndabók, efni í föt handa þeim
bræðrum, Pétri og Alfreð, skrautbúin brúða
handa Ellu litlu systur þeirra, þrjú pund af
súkkulaði og margskonar góðgæti.
Móðir þeirra lagði nú loks körfuna frá
sér. Hjarta hennar var fullt af þakklátssemi
og bæn til Guðs. En þá varð henni enn litið
niður í körfuna, og sá hún þá skrautlegt um-
slag á körfubotninum, og utan á það var
skrifað:
— Til móður Péturs litla frá jólabarninu.
í umslagið höfðu verið lagðar 300 krónur
í seðlum.
En þetta var ekki í síðasta skiptið, sem
hinni fátæku ekkju gafst tilefni til að þakka
Guði fyrir dásamlega hjálp í neyð og vanda.
Það var meðal annars eitt þakkarefnið, að
börnin hennar öll urðu henni til gleði, og
Pétur varð sérstaklega góður og mikill mað-
ur, því að hann elskaði Jesú til æviloka.
Hvert einasta barn sem elskar Jesúm, verð-
ur foreldrum sínum til gleði.
Verði þér eins og þú trúir.
Munðið hina stórfeldu verðlœkkun á barna-
bókum, sem auglýst var í októberblaðinu.