Ljósberinn - 01.12.1954, Síða 35
LJDSBERINN
143
eURMR HENNAR M0MMU
Fjórði vitringurinn
Gráhærður öldungur var á leið til Betle-
hem. Hann hafði meðferðis flösku með dýr-
indis smyrslum, gullmola og blóðrauðan
rúbínstein, sem hann virti fyrir sér með
mikilli aðdáun. Er hann nálgaðist bæinn,
varð fyrir honum hópur manna, sem var að
stumra yfir særðum dreng á veginum.
Öldungurinn gekk að drengnum og áður
en hann vissi af, var hann búinn að hella
öllum dýrmætu smyrslunum yfir sár drengs-
ins.
Því næst hélt hann áfram for sinni til
Betlehem.
— Ég á þó ennþá gullmolann og rúbíninn,
hugsaði hann með sér.
Allt í einu var tekið í hönd hans og sagt:
— Góði herra, gefið mér, ölmusu, ég er
gamall og fátækur.
Gráhærði öldungurinn leit á vesalings
beiningamanninn og gat ekki fengið af sér
að neita bæn hans. Hann átti enga peninga
aðra en gullmolann, sem hann ætlaði að gefa
barninu í Betlehem. Hann þreif gullmolann
og lagði hann í útrétta hönd beiningamanns-
ins.
— Enn á ég ljómandi rúbín handa barninu,
og hann er jafn mikils virði og smyrslin og
gullið til samans.
Leið hans lá fram hjá torgi, þar sem verið
var að selja þræla. Það var verið að bjóða
upp yndislega fallegt barn. Rétt hjá stóð
móðir barnsins yfirkomin af harmi og sorg.
Þetta var meira en viðkvæmt hjarta grá-
hærða öldungsins gat þolað. Þetta gat hann
ekki horft á aðgerðarlaust.
— Rúbíninn minn, rúbíninn minn!
Hann ruddist í gegn um mannþyrpinguna
með steinin í hendinni og keypti barnið.
Hann rétti móðurinni barnið og sagði bros-
andi út undir eyru af ánægju:
— Taktu barnið þitt, nú áttu það sjálf,
taktu það!
Hann ruddi sér braut áfram án þess að
bíða eftir þakklæti konunnar. En allt í einu
nam hann staðar. Ánægjubrosið stirðnaði á
vörum hans. Hann neri saman höndunum í
örvæntingu, og tár komu fram í augu hans.
— Ó, hrópaði hann, nú á ég enga gjöf
eftir.
Hann sneri við hryggur í huga. Eftir
stutta stund tyllti hann sér niður á þúfu við
veginn. Hann hallaði sér upp að tré og
sofnaði. Þegar hann vaknaði aftur, ljómaði
hann af gleði og hélt för sinni áfram hress í
huga.
Hvað hafði komið fyrir? Hann hafði dreymt
draum. í draumnum hafði hann séð fyrir
sér barnið í Betlehem í knjám móður sinnar.
Hann hafði fallið fram fyrir barninu til að
tilbiðja það. Er hann hóf upp augu sín, sá
hann, að dýrmæti steinninn hans glóði á
enni barnsins, og gullmolinn hans lá í litlu
barnshöndinni. Er hann horfði hugfanginn á
þetta, heyrði hann lága hvíslandi rödd barns-
ins, er það sagði:
— Það, sem þið gerið einum af mínum
minnstu bræðrum, hafið þið gjört mér.
Gjöf handa Jesú
Gömul helgisaga segir frá því, að ungur
fjárhirðir hafi staðið fyrir utan dyrnar og
horft á, er vitringarnir gáfu Jesúbarninu
dýrmætar gjafir sínar: gull, reykelsi og
myrru.
Hann var hryggur í huga og harmaði sárt,
hve fátækur hann var. Hann átti enga gjöf til
að gefa barninu.
— Þið eruð gæfusamir, sagðd hann við
vitringana, þegar þeir komu út. Þið getið
gefið barninu gjafir, en ég á ekki neitt.
Einn af vitringunum svaraði blíðlega:
— Drengur minn, nú skjátlast þér. Það ert
þú, sem ert hamingjusamur. Við erum gaml-
ir menn, og líf okkar er brátt á enda. En
þú ert ungur. Þú átt allt líf þitt framundan.
Þú getur gefið Jesú líf þitt og þjónað honum.
Þú ert hamingjusamur.