Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 35

Ljósberinn - 01.12.1954, Qupperneq 35
LJDSBERINN 143 eURMR HENNAR M0MMU Fjórði vitringurinn Gráhærður öldungur var á leið til Betle- hem. Hann hafði meðferðis flösku með dýr- indis smyrslum, gullmola og blóðrauðan rúbínstein, sem hann virti fyrir sér með mikilli aðdáun. Er hann nálgaðist bæinn, varð fyrir honum hópur manna, sem var að stumra yfir særðum dreng á veginum. Öldungurinn gekk að drengnum og áður en hann vissi af, var hann búinn að hella öllum dýrmætu smyrslunum yfir sár drengs- ins. Því næst hélt hann áfram for sinni til Betlehem. — Ég á þó ennþá gullmolann og rúbíninn, hugsaði hann með sér. Allt í einu var tekið í hönd hans og sagt: — Góði herra, gefið mér, ölmusu, ég er gamall og fátækur. Gráhærði öldungurinn leit á vesalings beiningamanninn og gat ekki fengið af sér að neita bæn hans. Hann átti enga peninga aðra en gullmolann, sem hann ætlaði að gefa barninu í Betlehem. Hann þreif gullmolann og lagði hann í útrétta hönd beiningamanns- ins. — Enn á ég ljómandi rúbín handa barninu, og hann er jafn mikils virði og smyrslin og gullið til samans. Leið hans lá fram hjá torgi, þar sem verið var að selja þræla. Það var verið að bjóða upp yndislega fallegt barn. Rétt hjá stóð móðir barnsins yfirkomin af harmi og sorg. Þetta var meira en viðkvæmt hjarta grá- hærða öldungsins gat þolað. Þetta gat hann ekki horft á aðgerðarlaust. — Rúbíninn minn, rúbíninn minn! Hann ruddist í gegn um mannþyrpinguna með steinin í hendinni og keypti barnið. Hann rétti móðurinni barnið og sagði bros- andi út undir eyru af ánægju: — Taktu barnið þitt, nú áttu það sjálf, taktu það! Hann ruddi sér braut áfram án þess að bíða eftir þakklæti konunnar. En allt í einu nam hann staðar. Ánægjubrosið stirðnaði á vörum hans. Hann neri saman höndunum í örvæntingu, og tár komu fram í augu hans. — Ó, hrópaði hann, nú á ég enga gjöf eftir. Hann sneri við hryggur í huga. Eftir stutta stund tyllti hann sér niður á þúfu við veginn. Hann hallaði sér upp að tré og sofnaði. Þegar hann vaknaði aftur, ljómaði hann af gleði og hélt för sinni áfram hress í huga. Hvað hafði komið fyrir? Hann hafði dreymt draum. í draumnum hafði hann séð fyrir sér barnið í Betlehem í knjám móður sinnar. Hann hafði fallið fram fyrir barninu til að tilbiðja það. Er hann hóf upp augu sín, sá hann, að dýrmæti steinninn hans glóði á enni barnsins, og gullmolinn hans lá í litlu barnshöndinni. Er hann horfði hugfanginn á þetta, heyrði hann lága hvíslandi rödd barns- ins, er það sagði: — Það, sem þið gerið einum af mínum minnstu bræðrum, hafið þið gjört mér. Gjöf handa Jesú Gömul helgisaga segir frá því, að ungur fjárhirðir hafi staðið fyrir utan dyrnar og horft á, er vitringarnir gáfu Jesúbarninu dýrmætar gjafir sínar: gull, reykelsi og myrru. Hann var hryggur í huga og harmaði sárt, hve fátækur hann var. Hann átti enga gjöf til að gefa barninu. — Þið eruð gæfusamir, sagðd hann við vitringana, þegar þeir komu út. Þið getið gefið barninu gjafir, en ég á ekki neitt. Einn af vitringunum svaraði blíðlega: — Drengur minn, nú skjátlast þér. Það ert þú, sem ert hamingjusamur. Við erum gaml- ir menn, og líf okkar er brátt á enda. En þú ert ungur. Þú átt allt líf þitt framundan. Þú getur gefið Jesú líf þitt og þjónað honum. Þú ert hamingjusamur.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.