Ljósberinn - 01.03.1960, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 01.03.1960, Blaðsíða 6
Þegar síðasta lambið var eitt eftir, tók Siggi við pelanum og sagði systur sinni að laumast burtu án þess að lömbin sæju. Það var engin hætta á, að þau eltu hann. Þau þekktu hann svo lítið. Undankoman tókst vel. En Sólveigu var þungt um hjartað, þegar hún hljóp niður hlíð- ina ásamt bróður sínum og heyrði angistar- fullt jarm litlu lambanna í fjarlægð. Það var sárt að skilja þau alein eftir uppi í fjalli, þeg- ar önnur lömb höfðu mömmurnar að flýja til, ef þau voru þyrst eða köld. Um kvöldið varð koddinn hennar Sólveig- ar blautur af tárifm, og hún bað Guð að varð- veita öll litlu lömbin. Næsta morgun, þegar komið var á fætur, stóðu níu lömb jarmandi í hlaðvarpanum. Þó að fóstran léti ekki mikið á því bera, fagnaði hún litlu vinunum sínum innilega. En hvar voru hin þrjú? Um hádegi komu boð frá nágranna-bænum um, að þrjú lömb hefðu staðið í kálgarðinum þar um morguninn. Sólveig fór strax að sækja þau og bað um leið afsökunar á framferði þeirra. Vafasamt er, hvort fóstran eða fósturbörn- in voru glaðari, þegar þau héldu heim á leið. Lömbin urðu að vísu fyrir vonbrigðum, þegar þau fengu enga mjólk, er Sólveig birtist. En hún lofaði þeim sopa, þegar heim kæmi og hljóp síðan af stað með þau á hælum sér. Því miður virtust lömbin ekkert hafa lært við fjallgönguna. Þau voru jafn fröm og ærslafengin eftir sem áður. Sólveig hótaði þeim lengri og erfiðari brott- för. En ekkert dugði. Að nokkrum dögum liðnum lagði hún af stað að nýju með pabba sinn til aðstoðar. í þetta skipti var farið miklu lengra en áð- ur. Þau gengu fyrir enda fjallsins og inn í lítinn en þröngan afdal. Þar fengu lömbin mjólk að skilnaði. Og eins og áður læddist Sólveig á brott meðan síðasta lambið fékk pelann sinn. Heim komu feðginin aftur að áliðnum degi. Nú var Sólveig vonlítil um að sjá lömbin sín fyrr en um haustið. Þó vaknaði hún snemma næsta morgun og flýtti sér á fætur til að vita, hvort nokkurt fósturbarnanna hefði ratað heim að þessu sinni. Svo var ekki. Þegar ekk- ert þeirra var í kálgarðinum þurfti varla að leita annars staðar. Ekki bárust neinar fregn- ir um garðaþjófnað hjá nágrönnunum. Sól- veig gladdist yfir því, þó að hún aftur á móti hefði kosið að fá einhverjar fregnir af hópn- um sínum. En eins og hún ætíð talaði um allt við Guð, bað hún hann einnig að halda verndarhendi sinni yfir litlu lömbunum og leiða þau öll heim að lokum. Hún var þess fullviss, að hann mundi ekki síður annast um þau en fugla loftsins og liljur vallarins. Þegar tæp vika var liðin, vakti mamma Sól- veigar hana óvenju snemma,einn morguninn. Hún brosti glettnislega um leið og hún sagði: — Það eru fjórir vinir þínir úti, sem spyrja eftir þér. — Hverjir eru það? spurði hún full áhuga. — Komdu á fætur, þá sérðu það, svaraði mamma. Sólveig flýtti sér í fötin og fór út. Það var eins og hana grunaði. Úti stóðu fjögur af fóst- urbörnunum hennar. Hún fagnaði þeim inni- lega, strauk þau og kjassaði og hljóp síðan inn til að biðja mömmu um mjólk. Þegar pelinn kom í ljós, gekk mikið á. Það þurfti ekki lítið til að svala viku þorsta. Sól- veig hló að litlu vinunum sínum. Og þó gat hún ekki varizt því, að jafnframt komu tár í augun, þegar hún hugsaði til hinna átta, sem ekki fengu neina mjólk og ekki rötuðu heim. Ekki höfðu lömbin fjögur neitt batnað við útileguna. Þau héldu uppteknum hætti, stál- ust inn í garða og skemmdu gróðurinn. Pabbi Sólveigar átti ofurlítið land hinum megin við ána og datt í hug að fara með lömbin þangað. Yfir ána gætu þau ekki kom- izt aftur, og enginn bær var nálægt, þar sem þau gætu gert usla. í hólma þessum voru þau í fáeinar vikur. Það var mesti reynslutími fyrir Sólveigu. Ain rann við túnfótinn, svo að það voru aðeins um eitt hundrað metrar yfir í hólmann. Hún gat því fylgzt vel með lömbunum og þau með henni. Ef þau heyrðu rödd hennar, hlupu þau jarmandi fram á árbakkann og stóðu þar langa stund í þeirri von, að fóstran sinnti þeim eitthvað. Það gat hún ekki, þó að hún fegin vildi. Til þess að lömbin yrðu rólegri reyndi hún að forðast að láta þau sjá sig eða heyra. En einnig það var erfitt. Hana langaði svo mikið 22 LJDSBERINN

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.