Ljósberinn - 01.03.1960, Blaðsíða 14

Ljósberinn - 01.03.1960, Blaðsíða 14
Framh. af bls. 32. neðan gein hyldjúpt hafið. .* . . Þriðji franski bíllinn heltist úr lestinni í Japan, en hinir þrír voru fluttir til Vladivostock og þaðan héldu þeir til Mansjúríu og stefndu í áttina til Síberíu. Mansjúría var erfið yfirferðar. Vegirnir .voru blautir og iðulega voru bílarnir dregnir af bænd- um yfir blauta akra. Árnar flæddu yfir bakka sína og ótal sinnum varð að ná í mannafla til að draga bílana upp úr fenj- um. . . . Nú voru fimm mánuðir liðnir frá upphafi ferðarinnar, þegar bílarnir náðu loks hinum víðáttumiklu sléttum Síberíu. Þar voru að vísu engir vegir, en landið var slétt og auðvelt yfirferðar. Bandaríski bíllinn var nú kominn 9 dagleiðir fram úr þeim þýzka, sem var næstur honum, en sá þýzki dró á hann þegar Bandaríkjamennirnir töfðust um fjóra daga vegna vélarbilunar. . . . Nú fór að koma skriður á ferðalangana. Brátt var komið til Evrópu, þar sem vegir voru betri. Fólk safn- aðist saman á götunum til að fagna kappakstursmönnunum. Italski bíllinn hafði dregizt mjög mikið aftur úr og var kominn úr keppninni, en hélt samt áfram að markinu. Banda- riski bíllinn Thomas og þýzki bíllinn Portos, voru nú tveir eftir síðasta áfangann. . . . Það var 30. júní 1908, fimm mánuð- um og 18 dögum eftir að bíl- arnir lögðu upp frá New York, að Thoms-bíllinn rann inn í Par- ís, 10 dögum á undan keppinaut sínum. Vegalengdin, sem bíl- arnir höfðu ekið, var 17000 míl- ur. Sá sem ók Thomas-bílnum var George Schuster, en hann var líka sá eini af áhöfn bílsins, sem fór alla leiðina. Hann hafði orðið að skipta um félaga á leiðinni. . . . Tilgangurinn með þessari ferð var auðvitað sá, að bjóða lesendum blaðanna uppá að fylgjast með spennandi ævintýri, en þessi för varð til þess að sýna fram á ýmsa galla bílanna við margvíslegar að- stæður og flýtti mjög fyrir end- urbótum á bifreiðinni, sem nokkrum árum síðar varð helzta flutninga- og farartæki á landi. Ferðin leiddi ekki síð- ur í ljós hvílíka feikna mögu- leika bifreiðin hefur, fái hún sæmilegan veg til að ferðast á. OrðsentiiwBtjar Ljósberanum er nú mikil nuðsyn að fá marga nýja áskrifendur. Nýir áskrifendur fá síð- asta jólablað í kaupbæti meðan það endist. Þeir, sem útvega nýja áskrifendur og senda greiðslu með pöntun, fá eina af barnabók- xun Lilju í verðlaun fyrir hverja 3 nýja áskrifendur, sem þeir útvega. ★ ★ ★ Verðlaunabækur þær, sem velja má um eru þessar: Annika — Áslákur í Bakkavík — Drengurinn frá Galíleu — Flemming í menntaskóla — Hetjan frá Afríku — Jessíka — Kalli skipsdrengur — Kristín í Mýrarkoti — Lilla — Lotta — Indíána- drengurinn — Vinir frelsisins — Þórir Þrastarson — Þrír vinir. ★ ★ ★ Ljósberinn á alla afkomu sína undir skilvísi áskrifenda sinna. Sendið því áskriftar- gjaldið kr. 35,00, strax eða greiðið það, þegar innheimtumaður kemur. ★ ★ ★ Munið að tilkynna afgreiðslunni bústaðaskipti, svo að komist verði hjá vanskilum. ★ ★ ★ Utanáskrift blaðsins er: Ljósberinn, Pósthólf 243, Reykjavík. 30 LJOSBERINN

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.