Ljósberinn - 01.03.1960, Blaðsíða 7

Ljósberinn - 01.03.1960, Blaðsíða 7
★ Arabíski hesturinn er heimsfrægur fyrir feg- urð og glæsileik. Arabi elskar hestinn sinn, sem bezta félaga og vin, hef- ur hann hjá sér i tjald- inu og á ættartölu hans aftur i aldir. /WWWVWWWWWWWWWW1 til að geta fylgzt með líðan þeirra, þegar þau voru svona nærri. Sólveig var fegin, þegar lömbin voru horf- in úr augsýn einn morguninn. Nú þurfti hún ekki lengur að hlusta á jarm þeirra og horfa á árangurslausar tilraunir til að nálgast hana. Sumarið leið. Um haustið kom allur hópurinn af fjallinu, þó að hann væri orðinn tvístraður. Sólveig sótti mjólkurkönnur og pelann til að vita, hvort lömbin myndu enn eftir honum. Um það hefði hún ekki þurft að efast. Ákafinn var svo mikill, að fyrsta lambið kippti túttunni af pelanum og hefði gleypt hana, ef Sólveig hefði ekki verið fljótari og sótt hana niður í kok þess. Næsta lamb sleit túttuna í sundur, þegar telpan hélt á móti. Hin tíu urðu því að láta sér nægja að fá klapp á vangana. En það þótti þeim heldur léleg huggun eftir að hafa séð pelann og hlakkað til að fá mjólkurdropa. Sólveig kom að vísu með mjólk í fati. En þau gátu ekki skilið, að innihald pelans og fatsins væri það sama og litu ekki við því. Fóstran varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum. Hún hellti mjólkinni í kálfafötuna og þótti leitt, að fósturbörnin hennar voru miklu heimskari en kálfarnir, sem drukku úr föt- unni með góðri lyst. Þó hafði hún ástæðu til að vera þakklát. Guð hafði varðveitt öll litlu lömbin um sumarið, eins og hún bað hann um, og leitt þau heim til hennar að nýju. Öll þekktu þau hana líka og mundu enn málróm hennar, svo að mjög heimsk gátu þau varla talizt, Þau voru hætt að stela. Bræður Sólveigar sögðu, að þau væru orðin of stór til að komast inn í garðinn, en Sólveig hélt því fram, að með aldrinum hefðu þau vitkazt. Ef þau fengju að lifa lengur, skyldu þeir bara sjá, hve góð þau yrðu. En til þess kom aldrei. Fósturbörnin urðu að lúta sama lögmáli og hin lömbin. Þau voru tekin, flutt að heiman, og Sólveig sá þau aldrei framar. 4 th u ffiti 1 Þetta er síðasta blaðið, sem sent verð- ur þeim kaupendum Ljósberans, sem skulda blaðið, í meira en eitt ár. Ef þeir óska að fá blaðið áfram, eru þeir beðnir að greiða skuld sína strax. — Áskriftar- gjaldið er kr. 35.00. — Utanáskrift blaðsins er: Ljósberinn, Pósthólf 243, Reykjavík. LJDSBERINN 23

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.