Ljósberinn - 21.02.1925, Side 2
50
LJÓSBERINN
sjálf vita, farið að byrja í þeim góða verkið, gera
þau að börnum föðursins í himnum.
Kæra bam! Jesús elskar þig, og þú lofar hann og
þakkar honum af hjarta og syngur:
„Eg elska Jesú,
því Jesús elskar mig“.
Eða gerir þú það ekki? Eg vona, að þú gerir
það, eins og börnin í musterinu forðum. þau sungu:
„Hósianna Davíðs syni!“ Óvinir Jesú og óvinir bam-
anna vildu láta hann hasta á þau. Hverju svaraði
hann:
„Hafið þér ekki lesið: Af munni bama og brjóst-
mylkinga hefir þú tilbúið þér lof“. —
Látið þessi orð Jesú ykkur aldrei úr minni líða,
góðu börn. „Hósianna syngið syni Guðs“ af hjartans
ást og gleði og biðjið: „Æ, breið þú blessun þína á
barnæskuna mína“. B. J.
-----o----
Guð heyrir til þín!
Kalli og Ragnar voru að renna sér á sleða niður
á Arnarhóli. Sleðinn flaug með þá niður brekkuna;
það var reglulega gaman. þeir veifuðu út höndun-
um og sungu hátt. — En, alt í einu rakst sleðinn
þeirra á frosna nibbu og veltist um, og Kalli og
Ragnar ultu sinn í hverja áttina.
„þetta var ljóta slysnin", sagði Ragnar brosandi
og sti’auk á sér- mjöðmina. En Kalli stóð upp og
tvinnaði saman blótsyrðunum.