Ljósberinn


Ljósberinn - 13.11.1926, Page 7

Ljósberinn - 13.11.1926, Page 7
hann viðráðanlegri dag frá degi og át það, sem hon- um var boðið. Þau leystu einn daginn fætur hans og annan dag- inn hendur hans. Þá gerði hann enga tilraun til að stökkva burtu. Þvert á móti. Honum þótti gott að sitja í keltu Eli og þiggja blíðuatlot hennar. „Það er hægt að sjá, að apinn hefir verið góður við hann, honum þykir vænt um að vel sé látið að honum“, sagði Eli. „Já, það var gott að við fundum hann, það var erninum að þakka“, sagði Páll. Einu sinni komu þau að fögru fíkjutré, sem spratt upp úr skriðu í fjallsbrekku. Þegar Eli sá tréð, hróp- aði hún upp yfir sig af fögnuði. Hún þekti það. Þarna var það, að við pabbi skutum einu sinni villi- svín“. „Jæja, við erum þá víst bráðum komin heim þangað, sem þú átt heima“, sagði Páll. „Já, það er víst. Ó, Páll, er það ekki indælt. Ertu ekki allshugar glaður?“ „Jú, þá fæ eg bráðum að koma til pabba‘, sagði Páll og lá við að gráta af gleði, en honum fanst, að drengur mætti ekki gráta og sízt ef stúlka væri úærri. En heyra mátti þó grátstaf í kverkunum. í þeirri sömu svipan stóðu þau bæði upp í körf- Unni og horfðu fram á leið. „Þarna er tréð með flughundunum', hrópaði Eli, er tau fóru fram hjá stóru, laufsnauðu tré. Það var fult af leðurblöðkum á stærð við ketti. „Nú er ekki nema klukkutímaferð heim til mín. —

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.