Nýtt kirkjublað - 08.01.1907, Síða 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ.
5
svo læsilega grein um uppeldið enska viS mentaskólana og
háskólana. Greinin heitir „The training of an english gentle-
man in the public schoolsi!. Höfundurinn er enskur biskup,
Welldon að nafni, en áður fyr var hann meistari við einn
helzta mentaskólann þar í landi, og flutti hann þetta erindi í
vor sem leið, austur í Japan.
Fæstir eru þeir hér á landi, sem kost eiga þess að sjá
og lesa tímaritið, sem í er vitnað, en mörgum mun þykja
fróðleikur og skemtun að fá eylítinn smekk þess. er enski
meistarinn hefir að segja um þetta vandaverk, að temja úr
ungum folum þá nianngæðinga, er risið geta undir hinu veg-
lega nafni.
Enska orðíð „gentleman“ er illþýðandi. Bezt er um slík
orð, að fara að loflegu dæmi feðra vorra, og auðga mál og
hugmyndir með því að taka þau blátt áfram í íslenzkum
búningi, en þó því að eins að svipurinn og hreimurinn sé
þá íslenzkur á eftir, en svo verður eigi um þetta orð, það
verður engin íslenzka á því, hvorki í sjón né heyrn. Göfug-
menni, prúðmenni, drengskaparmaður, sæmdardrengur og sitl
hvað íleira væri eitthvað í áttina. Merking orðsins er „mað-
ur (vel) ættaður“, og manni kemur til hugar orðið „fyrirmað-
ur“, í fornri merkingu eitt og hið sama og yfirburðamaður,
og til skiluiugs á „fyrirmanns“-hugmyndinni festir maður
sjónina aðallega á mannkosta yfirburðunum.
Höf. bendij' á, að það sé nokkuð sérkennilegt fyrir skól-
ana ensku að láta það sitja í fyrirrúmí að vekja drengskap-
arlundina og viljakjarkinn, en sjálf fræðslan sitji oft fremur
á hakanum, og sé veigaminni en gerist í ýmsum öðrum
löndum. Og einmitt þessu þakkar hann hvað mest, að Eng-
lendingar hafa um langan aldur verið slíkir yfirburðamenn,
Þeir hafa lært fyrir lífið
Hann hefir aðallega fyrir augum, gömlu háskólana ensku,
Cambrigde og Oxford, þar sem námsmenn eiga beint heimili
sitt um námstímann, hver hópur fyrir sig á stúdenta-garði
með sjálfsstjórn fyrir sig, en þó undir eftirliti háskólastjórn-
arinnar. I annan stað talar bann um þá eina lærða skóla,
sem vér mundum nefna heimavistarskóla, þar sem skóla-
meistari og kennarar ganga sveinum í foreldra stað, Þá
skóla telur hann sérkennilega íyrir enska uppeldið. Þær