Nýtt kirkjublað - 08.01.1907, Qupperneq 12
8
NÝTT KXKBJUBLAÐ.
„lftgblýðniu (loyalty). Og lftghlýðnis-lundin hún skapast bezt
við það að bera fult traust til skólasveina. Frá ensku sjón-
armiði er pað höfuðsynd, sem eigi verður fyrirgefin, að lesa
bréf pilta, eða hlera til samtals þeirra, eða yfir höfuð að hafa
úti nokkrar njósnir um framferði þeirra. Eg hefi heyrt þess
getið að skólameistari einn hafi verið grunaður um þnð, að
hann vœri að athuga leiki pilta i sjónauka. Eg vona og
ætla að sagan sé ósönn. En það sat mjftg lengi í pilluni.
Einkennileg lftg eru um pað i opinberu skólunum, þótt
óskráð séu, hvernig sambandið á að vera á milli skólameist-
ara og sveina svo að vel sé: Til dæmis að taka má skóla-
meistari eigi spyrja svein um orð og gjftrðir skólabræðra lians.
Eigi má hann heldur halda rannsókn yfir pilti um eigin gjftrðir,
og skyldi koma til ]>ess að hann legði þá spurning fyrir pilt,
hvort hann nú hefði gjftrt það eða það, þá má meistari
eigi fella piltinn á sinni eigin játningu með því að refsa hou-
um á eftir. Eigi má heldur skólameistari — nema um ein-
liver fátið og stórkostleg afbrot sé að ræða — leita sftnnun-
argagna gegn piltum hjá þjónustufólki við skólann. Alt slíkt
háttalag færi með traustið.
Meistarinn verður að vera réttlátur. Hrottaskap og hörku
geta sveinar fyrirgefið, en ranglæti og hlutdrægni fyrirgefa
þeir ekki . . . Um fram alt annað, þá verður hann að
taka það trúanlegt sem pilturinn segir. Segi sveinninn það
svo að vera, þá er það rétt; meistarinn trúir honum alveg
hiklaust. Það er betra, og svo stórum betra, að það geti
komið fyrir endur og eins, að piltur geti konfið sér úr klíp-
um, með því að gjftra svo lítið úr sér að fara með ósannindi,
heldur en að vantrausts-andinn komist inn í skólann nfilli
meistara og sveina. Skólapiltar dæma hart um hvern þann
félaga sinn, er fer með lýgi. Það alnienningsálit bregst eigi,
þegar skólameistari ætlar þeim það drenglyndi, að þeir aldrei
segi annað en satt. Stanley prófastur reit æfisftgu dr. Arn-
olds, og segir hann þar frá því, að Arnold hefði tekið fram
í hjá piltunum, þegar þeir voru að færa sannanir á mál sitt:
„Ur því þú hefir sagt mér það, þá þarf engra sannana við;
eins og ég trúi þér ekki“. Og Stanley bætir því við, að af
þessu hafi það leitt, að enginn vildi láta sig þá skömm henda
að segja Arnold ósatt, — af því að hann ávalt trúði orðum pilta“.