Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Page 1
NYTT KIRKJUBLAÍ)
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1907.
Um daufdumbraskóla og daufdumbrakonslu.
ÁriS 1907 er merkisár i sögu málleysingjakenslunnar
dönsku, ]>ar sem 100 ár eru liðin frá ]>ví fyrsti málleysingja-
skóli Dana, konunglega daufdumbrastofnunin í Kaupmanna-
höfn, tók til starfa. Sjalf er málleysingjaken'slan auðvitað
miklu eldri, vér heyrum getið um það í fornöld og eins á
miðöldunum, að einstaka málleysingjum liafi verið kent að
gera sig skiljanlega og skilja aðra og litur meira að segja út
fyrir, að einstöku menn meðal þeirra hafi komist tiltölulega
langt, en allur þorrinn fór þó á mis við alla fræðslu og alt
uppeldi En svo fróðlegt sem það væri að rekja sögu mál-
leysingjakenslunnar, þá er það þó ekki tilgangur minn að
sinni; hér vildi ég aðeins benda á, hvað fullkoninir málleys-
ingjaskólarnir nú eru orðnir hjá Dönum og öðrum mentaþjóð-
um heimsins, og bvað vér Islendingar þurfum að gera til
þess að hægt sé að segja, að vér gerum skyldu vora í ]>essu
efni. Því að ]>að hafa allar siðaðar þjóðir viðurkent, að þær
hafi skyldur við málleysingjana, þærskyldur að hjálpa þessum
aumingjum lil þess að verða að nýtum og góðum mönnum.
Þessum skyldum hafa Danir fúllnægt fyrir 100 árum og eru
þeir með ]>eim fyrstu þjóðum, sem hafa séð ]>að, að þessi
kensla kemur hverri þjóð við og að hver málleýsingi á heimt-
ingu á að fá þá fræðslu á opinberan kostnað, sem aðstand-
endur hans ekki geta veitt. Og þar sem allar siðaðar þjóðir
nú eru langt komnar í þessu el'ni, og engum deltur í hug
meðal þeirra að telja því fé illa varið, sem veitt er lil mál-
leysingjakenslu, ]>á sýnist það ekki vera fjarri sanni, að Is-
lendingar fengju lika eitthvað að vita um málleysingjakensl-
Reykjavik, 20. ágúst.
15. blað