Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Page 2
170
NÝTT KXRKJUBLA©.
una, svo að mönnum gmti skilist það, að málleysingjarnir
eiga rétt á ])ví, að eitthvað meira sé gert i'yrir þá, en nú er
raunin á.
Eg verð þó strax að geta þess, að mér er næ.-ta óljúft
að rifja upp fyrir mér, hvernig málleysingjakenslan er annars-
staðar, til j)ess að bera það saman við þá kenslu, sem haldið
er uppi á Islandi, því að sá samanburður miðar einna mest
til þess að fá mann til að skammast sín og gera manni ilt
í skspi. Og ég vil taka það fram strax, til þess að afstýra
öllum misskiluingi, að hér er það fyrst og fremst fjárveitingar-
valdið, sem hefir syndgað, þar sem það um mörg ár hefir
álitið sig gera skyldu sína með því að leggja til málleysingja-
skólans svo hlægilega litla upphæð, að hún varla hefir hrokkið
fyrirfðtum og fæði o. s. frv. banda málleysingjunum, og er þá
eftir uppfræðingin, sem þó ælti að vera aðatatriðið. Verð
ég, til þess að finna þessum orðum minuni stað, að lýsa
stutllega málleysingja.-kólum Dana, sem standa oss næstir og
vér höfum mest samband við, og því uæst að lýsa vorum
málleysingjaskóla og geta þess, bverjar umbætur á honum
ern mest knýjandi.
Málley.-ingjastofnunin í Kaupmannahöfn, sem er og alla
tíð heíir verið ríkis-tofnun, er 100 ára gömul í ár; skóla-
skylda fyrir málleysingja í Danmörku er nokkuð yngri, frá
1817. Þarf naumast að geta þess að þessi skóli var mikíu
fátæklegar úr garði ger upphaflega, en hann er nú; bæði
var námstíminn styttri og kennarar færri, en samt var þessi
skóli þegar í byrjun miklu fullkomnari enn ísl. málleysingja-
skólinn er enn í dag. En Danir fundu þó til þess, þegar
fram liðu stundir, að svo búið gat ekki staðið. Námstiminn
(6 ár) var of stuttur, þrengslin of mikil, kenslan ekki full-
nægjandi, þar sem hver kennari hafði íleiri börn en hann
með góðu móti gat komist yfir að kenna. Auk þess var þá
farið að viðhafa nýja kensluaðferð í heiminum, tal-aðferðina,
sem Danir vildu líka reyna hjá sér. Þessvegna voru, auk
skólans í Kaupmannahöfn, stofnaðir nýjir málleysingjaskólar,
i Fredericia (1881), sem nú er greindur sundur í tvo sjálf-
stæða skóla, auk hins þriðja, sem er undirbúningsskóli, og i
Nyborg (1891). Skólinn í Nyborg tekur aðeins við þeim
nemendum, sem eru óbeinlínis daufdumbir, ]). e. hafa leifar