Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Page 3

Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Page 3
NÝTT KIKKJUBLAÐ. 171 af heyrn, en geta |>ó ekki vegna heyrnarskorts, notið almennrar kenslu. Námstíminn fyrir málleysingjana er 8 ár, 1 ár á undirbúningsskólanum, en síðan 7 ár á einhverjum hinna fjögra málleysingjaskóia. Er hörnunum flokkað eftir gáfum og hiu treggáfuðustu uppfraedd á Kaupmannaliafnarskólanum með bendingum og fingramáli. Á öllum skólunuin lau'a börnin, að svo miklu leyti sem auðið er, itið sama og hörnurn er kent í al- mennum skólum ; inóðurmálið, kristin fræði, reikning, ágrip af landafræði og náttúrusögu og sögu landsins; mun óhætt að segja, að ]iau börn, sem eru sæmilega gáfuð, hafi í ílestum þessum greiu- um lært meira en flest islenzkfermingarhörn, ]rótt talandi séu. Aðal- kenslugreinin er móðurmálið og er öll önnur kensla jafnframt fræðsla í því. Auk þessa læra börnin í skólanum ýmsan iðnað, svo að þau síðar í lifinu geti sjálf leitað sér atvinnu. Það ]>ykir Dönum mikið mein, að enginn af málleysingja- skólum þeirra hefir veitt kenslu í algengri sveitavinnu, og er nú i ráði að bæta úr þeim galla. Það er ekki auðvelt, að skýra frá því í stultu máli, hvernig farið sé að kenna málleysingjum; hér skal þess að- eins getið, að aðalreglan fyrir allri málleysingjakenslu er sú að leiöa hörnin stig af sligi, frá ]>vi einfaldasta til þess marg- hrotnara, og að helzta aðferðin lil þess er sú, að láta málleys- ingjana verða fyrirþeim áhrifum með sjóninm, sem önnurbörn verða fyrir með heyrninni. Verður því nauðsynlegt að hafafleiri og fullkomnari kensluáhöld við daufdumbrakenslu en viðaðra kenslu, og eins nauðsynlegt er hitt. að hafa rúmgóðar kenslustofur, þar sem börnin geta hreyft sig og fest sér það i minni með leikjum og slíku, sem kennarinn vill láta þau læra. Auk þess er bráðnauðsynlegt að hafa rúmgott hús til þess að venja börnin á reglu og hirðusemi. Alt þetta er í prýðis- góðu ástandi hjá Dönum, skólarnir hver öðrum rúmhetri og fegurri, einkum ]>ó þeir nýrri, og alt er gert, sem hægt er að gera, til þess að börnin geti haft hrausla sál í hraustuin likama. Daufdumbrakenslan hefir líka horið fagra ávöxtu í Danmörku; margir málleysingjar hafa orðið nýtustu menu, fáeinir jafnvel kennarar við málleysingjaskólann. Eftir riti því, er málleysingjaskólinn í Kaupmannahöfn hefir gefið út á 100 ára afmæli sínu, hafa af 023 drengjum sem útskrifast liafa frá þeim skóla á árunum 1825 — 1905, aðeins 55 notið

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.