Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Page 11

Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Page 11
NÝTT KlRKJBLAÐ. 179 eingöngu af tilliti til þess veðráltufars, sem þeir eiga við að búa. Mjög lítillar tilsagnar þarf til ]>ess að vekja skilning á þýðingu klœðnaðarins í siðferðislegu tilliti. Á hinn bóginn er rétt að geta þess, að Kínverjar álíta það ótilhlýðilegt hvernig Norðiu’álfumenn bera klæði sín. Eftir skoðun þeirra eru fötin til þess gjörð að (tylja líkamsskapnaðinn, en ekki til þess að láta sem mes-t á honum bera. I nánu sambandi við alla hirðingu líkamans stendur spurningin um mataraðiö, það sem etið er og drukkið. Einn- ig hér er að vísu mikið komið undir smekk og tilíinningu hvers einstaks, en á því leikur þó naumast nokkur vafi, að hvað það snertir að velja sár hollasta og lientugasta fæðu, ekki síðuren að hófsemi í mat og drykk, standi kristnir menn miklu framar hinum heiðnu hi'æðrum sínum. Eg mun í öðru sambandi minnast á hið viðhjóðslega mannakjötsát, er á sár stað mjög víða í Suðurálfu, á eynni Formósa og sum- um af Suðurhafseyjunum og til skamms tíma líðkaðist á öðr- um þessum eyjum og á Nýja Sjálandi, þótt nú sé því liætt þar. Hér skal ennfremur aðeins drepið á aðra eins óholl- ustufæðu eins og maðka, mýs og rottur, mold og trjábörk og annað þaðan af verra, sem algengt er að menn leggi sér til munns. I ]>ess stað vil ág fara nokkrum orðum um það sem menn hafa sér einkum til munaðar í þessum löndum. Hvað þetta snertir hefir hinn kristni heimur því miður mikl- ar syndir á samvizkunni gagnvart heiðnu löndunum. Að vísu eru þar til margvísleg heimagjörð hressingarmeðul, sem valda miklu tjóni séu þau vanbrúkuð, t. d. hasjisj-reykingarnar í vesturhlula Austurálfunnar, pálmavínið og ölið víðsvegar i Suður-og Auslurálfu; en mestu tjóni hafa þó va dið hinar tvær alkunnu áfengis-tegundir, sem Norðurálfumeun hafa fært þeirn, en ]>að er í Kina hið alræmda ópium og i Afríku, meðal Indiána í Ameríku og því sem næst um allan heim ; brennivínið. (Niðurl.)

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.