Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Blaðsíða 2

Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Blaðsíða 2
NÝTT KmKTUBLAÍ) Vitringar af hjarta hrœrðu honum gnll og myrru færðu; konungar sinn konung mærðu, Likt og María látum lijóma lof um guðs vors Imtgidóma, og með sveitum engla róma helga sigur-höfðingjann. eiliflega drottins dýrð. Herrann Kristur holdi klæddur hér á jörð af Maríu fæddur, dýrðar Ijóma drottins gæddur, — lof og dýrð og þökk sé þér. V. B. Jingsetningarrceða 15. febrúar 1909. Auga þitt er tampi líkamans; þ<(jar auga þitt. er heilt, þá er og altur líkami þinn í birtu; en sé það sjúkt, þá er og likami þinn í myrkri. Gœt því þess, að Ijósið sem i þér er, sé ekki myrkur. (Lák. 11, 34 -- 35.) Hin nýlesnu ritningarorð beina hnga vorum að auga mannsins, að sjóninni. — Angað er einhver veglegasti hlnti mannlegs líkama. Sjónin einhver dýrlegasli hæíileiki manns- ins. Sjónin setur vitundarlif vort og tilfinningalíf í samband við margt af því, sem dásamlegast er í tilverunni. Iiún hjálp- ar oss til að sneiða hjá ótal hættum og torfærum. Sjónin hjálpar manninum til að rata ýnisar leiðir, sem hann kæmist alls ekki, ef hann vantaði sjónina. Hún hjálpar honum til að komast beztu leiðina og skemstu að því takmarki sem hann vill ná. En ef sjónin deprast, þá skyggir að; ef hún hverfur alveg, ]>á steypist myrkrið yfir manninn, óratandi myrkur. Þ.á slitna ólal þræðir, sem áður hafa sett manninn i samband við til- veruua kring um hann. Þá getur maðurinn ekki lengur séð fótum sínum forráð. Hann getur þá ekki heldur leilt þá eða annast, sem honum var áðui' svo Ijúl’t að leiða, af því að hann elskaði |iá. Ef ljósið slokknar á lampa líkamans, ef augað er sjúkt — sjónlaust — hlýtur maðurinn að sleppa

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.