Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Blaðsíða 5

Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Blaðsíða 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ 53 inn er til vits og ára, hugfesti það, að hann láti sér ekki þessa áminningu Jesú nr minni líða: „Gæt þess, að ljós- ið, sem í þér er, sé ekki myrkur.“ Og því nauðsynlegra er að minnast áminningarinnar og hreyta eftir henni, sem störf- in eru vandameiri, er maðurinn hefir á hendi og áhrifin af gjörðurn hans víðtækari á hag og heillir þjóðarinnar og föð- urlandsins. — Sannarlega nrá því áminning þes-i ekki liða úr minni alþingismönnunum, er þeir koma saman til þess að hugsa, ræða og gera ákvæði um ýms hin mikilvægustu mál þjóðar vorrar og f ðurlands. Það er sárt til þess að hngsa, ef segja mætti við nokk- urn mann: „Ljósið, sem í þér er, er orðið myrkur“. Það er sárt að Itugsa tll þess, jafnvel þótt maðurinn bakaði að eins sjálfum sér einum ógæfu eða vansæmd með breytni sinni. Enn þá sárara væri, ef hann bakaði jafnframt öðrnm mönnum ógæfu, svo sem konu sinni, hörnnm eða öðru skyldu- liði. En Iang-hörmulegast þó, ef hann þess vegna bakaði þjóð sinni eða ættjörð tjón eða hættu. En þetta gæti hlotist af því, ef segja mælti með sauni við einhvern þeirra manna, er sæti eiga á alþingi. „Ljósið sem í þér er, er orðið myrkur“. Eg er sannfærður um það, eg finn það, eg veit það, að vér þráum það allir, að auga vort sé heilt, að vér viljum allir gæta þess, að ljósið, sem i oss er, sé ekki myrkur, svo að vér gætum frenmr haft von um það að bera gæfu til að vinna með guðs hjálp þjóð vorri gagn og sóma með störfum vorum á alþingi. Alþingi er elzta samkoma þjóðar vorrar, sem enn er við lýði. Og það ætti að vera hin þjóðlegasta og veglegasta sam- koma þjóðarinnar, þar sem hver keptist við annan að leggja fram krafta sína og vitsmuni landi og þjóð til gagns og blessunar. Þá mætti næsturn segja, að alþingi væri auga þjóðarinnar, er lítur eftir heillum hennar í hvívetna. Þá er heill þjóðarinnar mjög komin undir því, að þetta auga sé heilskygnt. Og heilskygnt er það, ef hver einslakur þing- maður lætur sér ant um það, að Ijósið, sem í honum er, sé ekki myrkur; ef hann lætur Ijós sannleikans, samvizkunnar og kærleikans ráða sannfæringu sinni, og stjórna orðum sín- um og gjörðum. Þegar um sjónina er að ræða, þá lætur hver maður sér

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.