Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Side 8

Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Side 8
56 NÝTT KIRKJUBLAÐ um skoðanir komandi kynslóða á honum. Sá, sem tekst ]>etta hlutverk á hendur, verður að vera sjálfur meiri, betri, lærðari og færari en fólk er flest, ef dómur hans á að verða tekinn sem æðsta jarðneskt réttlæti. Hann verður að vera þrúnginn af réttlætistilfinning inst i sínn eðli, en auk þess verður hann að byggja á heimildun) fortíðarinnar, sögnum þeirra tíma, er hinir dómfeldu hafa lifað á, ef hann þekkir þá eigi af eigin reynd. Þetta tvent: hann sjálfur og fortíðin eru dómsástæðurnar fyrir dómi sögunnar eftir á, er sögurit- arinn fellir. Af þessu leiðir ]>að, að eins og áríðandi er að söguritarinn, dómari þessa stóra dóms, sé hreinn, vandaður, réttlátur, fróður, eins riður á að heimildirnar, sagnirnar um þann, sem verið er að dæma, séu vandaðar, hreinar, réttlátar. Æíiágripin, sem eg mintist á, voru og eru ekki dómur sögunnar um þessa menn, en það ætti að mega skoða þ’uu sem drög til óuppkveðins en komandi dóms. Eg sökti mér niður í að hugsa um þetta. Eg hugsaði mér ef saga nútiðar Islendinga yrði t. d. samin seint á þessari öld, eða snemma á 21. öldinni, og þessir menn leiddir tyrir dómstól þeirrar sögu eftir þessum heimildum, kæmu Jieir þá lit frá þeim dómi í sinni sönnustu og réttustu mynd? Fengi kynslóðin nýja sanna og rétta hugmynd um þá? Mér gat ómögulega fund- ist það, af því að eg þekti mennina sjálfur og suma þeirra mjög vel, hvað þeir höfðu starfað, talað og hugsað. Þessi drög til sögu þeirra fyrir ókomna tímann, virtist mér því fölsk, og sá dómur, sem á þeim yrði bygður, hlyti því að verða ranglátur dómur. Þegar eg vaknaði upp af þessum hugleiðingum heyrði eg mig kalla: „Ekkert réttlæti á jörðu, sögunnar dónmr er falskur, hlutdrægur, ranglátur af ]>ví að hann er bygður á fölskum, lilutdrægum, ranglátum drögum. Aðalmyndirnar, sem ókomnum kynslóðum eru fengnar i hendur af mönnum fortíðarinnar, eru afskræmdar, af því að lýsing samtiðarmanna ]>eirra er skökk. Þetta varð niðurstaðan af hugleiðingum mínum. Og eg er reiður við blaðamennina íslenzku. Þeir búa til mest af þessum fölsku drögum til dóms sögunnar, þeir út- breiða mesta lygi meðal kon^andi kynslóða, þeiin er það að kenna að sagan yerður vitlaus og hrein og bein lygasaga.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.