Nýtt kirkjublað - 01.03.1909, Síða 12
GO
NÝTT KIKKJUBLAÐ
lý stiórnarskrá.
I frumvarpi ]>ví að nýrri stjórnarskrá, sem landsstjórnin
leggur fyrir alþingi eru þessir viðaukar við þjóðkirkjugrein-
arnar sem áður voru:
„Sambandi milli þjóðþirkju og landsstjórnar skal skipa
með lögum".
„Enginn er skyldur lil að inna af hendi persónuleg gjöld
til neinnar annarar guðsdýrkunar en þeirrar, er hann sjálfur
aðhyllist, en gjalda skal hann til skóla hin iögboðnu persónu-
legu gjöld þjóðkirkjunnar, ef hann sannar ekki, að hann
heyri til öðrum trúarbragðaflokki, er viðurkendur er í landinu.“
„Réttindi trúarbragðaflokka þeirra, er greinir á við þjóð-
kirkjuna, skulu ákveðin með lögum“.
Nýmæli þessi eru góð, og er óhugsanlegt að frjálslynt
þing láti standa á samþyfki sínu.
S ö 9 u k o r n
af verklegum kristindómi.
Sagan gerist á Austfjörðum i vetur. Presturinn er sögu-
maðurinn, og þeir sem heima eiga í þeim firðinum kannast
við söguna. Blaðið segir söguna með orðum prestsin<:
Það kveður svo oft við, hvað kristindómurinn sé dauður
úr öllum æðum á þessu landi, og þá ekki sízt sú hlið hans
sem litur að framkvæmdarsömum kærleika. En hér kom
fyrir atburður núna um áramótin sem er þess verður, að
honum sé haldið á lofti.
Á jólaföstunni andaðist bóndinn á H. hér í hreppnum,
Jón að nafni, kominn hátt á sextugsaldur. Hann var án efa
einn af þessum útburðum mannfélagsins. sem ekki er svo
fátt af. Uppeldi hans þekti ég ekki, en mikið má vera, ef
mannfélagshöndin hefir ekki reynzt honum lcöld þ:í. Fákunn-
andi var hann fremur að andlegum mentum, en vel verki
farinn og lagtækur. Að mannfélagið liafi tekið á honum