Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Qupperneq 8

Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Qupperneq 8
56 NÝTT KIRKJTTBLAÐ niður við þessa „lœrdóms—sundurhlutan“ og aðra slíka — þessi dýrmætu 4 ár? Hvað maður finnur sárt til þess á stundum seinna í líf- inu að vera mállaus með öllum tungumálalærdóminum, kunna ekkert til dráttlistar, vera hvorki tindhagur né naglfær, vera ósyndur o. s. frv., o. s. frv. 011 leikni auga og handar van- rækt. Og eg er svo smeikur að þetta brenni enn við í skól- unum þótt skárra sé nú en áður. Og enn séu einhverjir vel- þenkjandi fáráðlingar að misþyrma unglingunum með stórum bókum fullum af orðabóka-lærdómi. Og þvi verð eg dálítið beiskur í orðum, og hygg það vera „fordild“ að heimta stærri landfræðisbók — efnismeiri — bæjafleiri o. s. frv. Myndina af landinu, frá guðs og manna hendi, með öllu sem í er og á, mál- ar stóra bókin ekki að gagni hvort sem er; og varla neinn nema augað, sem sjálft sá. Eg er svo hræddur um þetta, af því að vélin sem áfram knýr er enn hin sama. Gangvélin i kenslunni hjá oss er prófið, með miklum skilum. Kennarinn þarf að geta spurt svo margs, til þess að prófsorða-belgurinn hjá nemandanum verði fullur. Um þetta væri margt meira að segja. En eg hefi nokkra von um að fræðslumálastjórinn taki þetta að einhverju til íhugunar í Skólablaðinu sínu, og er þá betur en ver, að því hef- ir verið komið af stað hér. lYcrsu margir lesa biblíuna á íslandi? Að maklegleikum hefir meistari Eiríkur Magnússon lofað nýju biblíuþýðinguna, og talið hana stórmerkan vott menning- ar. En þar sem hann telur hana munu verða til eflingar góðri tungu vorri, virðist hann hafa gleymt, við svo margra ára dvöl á Englandi, þar sem bibfían er metin að verðleik- um, að slíkt hið sama þekkist ei á voru landi, íslandi. Hversu mörg heimilin skyldu þegar hafa eignast nýju biblíuna? Og hversu mörg þeirra munu opna hana hvern sunnudag, hvað þá daglega? — Því það er ekki nóg, að biblían sjáist í bókahyllum vorum. Lesa verður biblíuna —

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.