Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Side 16
64
NÝTT KIREMUBLAÐ
ár, en varð þá að gefast upp við prestskapinn vegna 'neilsu-
leysis. Bókin þessi er afarelskuleg og skemtileg, og um leið
mjög vekjandi. Ymsir hér á landi hafa lesið sér til ánægju
prédikanir hans:
„Þegar ég var nýkominn út í prestskapinn, stóð hún
altaf á mér hugsunin um það, hvernig ég ætti að prédika. Það
var tvent gagnólíkt sem fyrir hugann bar. Takist prestinum
að ná spurningunum er brjótast í hugarfylgsnum áheyrand-
anna, þá taka þeir eftir og það vel. — En svo í annan stað
orð, orð — upptuggustaglið sama, sem öllum hefir dauðleiðst
fyrir löngu“.
„Eg mintist þess, hvað eg sjálfur hafði átt dauðans bágt
með að hafa ánægju af stólræðunum, og láta þær verða mér
að einhverjum notum andlega. Og nú var eg sjálfur orðinn
prestur, og þá var það heitasta óskin min og áform mitt, að
láta fólkið fá sínar eigin hugsanir ræddar og bræddar við
boðun orðsins“.
„Rökkursögur11.
Ritstj. vill reyna að skemta lesendunum, en litið er um frumsömdu
sögurnar lijá oss, mestalt sögulcyns í samskonar útlendum blöðurn er
ómeti. Eg dáist oft að því, livað síra Friðrik Bergmann getur enzt til
að koma með læsilegar sögur í „Breiðablikum11, og kunnugur hefir
sagt mér, að bann verði t.il þess að halda og lesa heljarritsöfn ensk
með eintómum sögum til að ía þetta litla úrval. Nú koma hér í N.
Kbl. taeinar sögur til fróðleiks og gamans, sem kendar eru við rökkr-
ið, bæði vegna dularhjúpsins sem yfir þeim er, og vegna dagstundar-
innar þegar lielzt er farið með þær. Ekkert verður tekið nema eftir
beztu heimildum, og það íslenzkum, og þær greindar. Og eftirgangs-
munalaust var það ekki, að fá Tr. G. til að skrifa fyrstu söguna.
Bjarnii, kristilegt heimilisblað. Kemur út tvisvar i mánuði. Verð
1 kr. 50 au., i Ameriku 75 cent. Ritstjóri Bjarni Jónsson kennari.
Breiðablik, mánaðarrit til stuðnings íslenzkri menning. Ritstjóri
séra Friðrik J. Bergmann, Winnipeg. — Verð 4 kr. hér á landi. — Fæst
hjá Árna Jóhannssyni bankaritara.
Sameiningin, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. Isl. i Vesturheimi
Ritstjóri séra Jón Bjarnason í Winnipeg. Hvert. númer 2 arkir. Verð
hér á landi kr. 2,00. Fæst hjá kand. Sigurb. Á. Gíslasyni í Rvk.
Nytt Kirkjublað, fimta árið 1910, kemur út 1. og 15. í hverjum
mánuði. Verð: 2 kr. — 75 cts. i Ameríku. — 2 kr. 75 u. annarsst. er-
lendis. — Ilá sölulaun. — Eldri árgangar enn fáanlegir fyrir hálfvirði.
Félugsprentsmiðjan.