Nýtt kirkjublað - 01.01.1912, Blaðsíða 11
NÝTT KIEKJUBLAÐ 7
lífsfftrunautur. Hann vill hjálpa þeim til þess að geta verið
réttlátir, ef þeir vilja taka hjálpinni. Hann leggur eigi upp
niisgjörðir mannanna þeim til áfellingar, heldur fyrirgefur hann,
ef þeir í sannleika iðrast, og hjálpar þeim aftur á fætur er
hrasað hafa. Hann lifir með þeim og í þeim og hann hefir
auglýst það, hvað samlífið við hann felur í sér, í lífi oglund-
arfari þeirra manna, sem komist hafa inn í það samlíf, og
þá allrafullkomnast í lífi og lyndi Jesú frá Nazaret, sem op-
inberar — það er: afhjúpar — hvorttveggja í senn fyrir
mannanna börnum: hvað guð er og hvað maðurinn getur orðið.
A 50 árunum hinum síðustu er biblían orðin sem ný
bók. Og það er mín innileg sannfæring að hin nýja skoðun
á biblíunni styrkir hana einmitt og staðfestir hvað best sem trúar-
bókina. Biblían var áður skoðuð eins og hréf frá guði; beint
af honum sjálfum rituð. Nú ér það skoðun vor, að persón-
urnar, sem biblíuna hafa ritað, taki oss við hönd og séu að
leiða oss fram fyrir guð. Persónan er miklu mætari fyrir
mannlegt kyn en bréfið. Og ekki varðaði oss um að fá ó-
skeikulan boðskap um guð, heldur hitt að finna guð sjálfan.
Biblían er öllu öðru fremur bók mannlegrar reynslu, og þar
er fullreynd fengin á því, að verustað vill guð sér kjósa hjá
mönnunum, og það eins nú á 20. öld eftir Krist og 12 öld-
um fyrir burð hans. Og engu síður í Ameríku en i Palestínu.
Engu síður hjá sjáandanum á vorum dögum en hjá spámönn-
um og postulum fyrri alda.
Og hvað biblían nær öllum trúarreynslustigunum. Þar
eru myndir af fálmandi þrá er leitar guðs en hefir eigi fund-
ið hann, myndir er svo smáskýrast ogjfyllastjí trúarlífsreynslunni,
þangað til Páll getur lýst sig fullvissan þess, „að hvorki dauði
né lif, né englar, né tignir, né hið yfirstandandi, né hið ó-
komna, né kraftar, né hæð, né dýpt, né nokkur önuur skepna
muni geta gjört oss viðskila við kærleika guðs, sem eríKristi
Jesú drotni vorum.“
Biblían var áður fyr skoðuð heilög bók sem boðskapur
guðs til hins guðlausa heims. Enn helgari verður hún oss
hin „nýja biblía“ sem opinberun guðs í mannlegri trúarreynslu,
stefnandi að því marki að hver mannssál megi af eiginni raun
kenna guðs návistar.