Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Síða 1

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Síða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ HÁLFSMÁNAÐARRIT í1 YEIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING 1912 Reykjavik, 1. april. 7. blað Im fækkun kirkna, ainkanlega í irimsnesi. Islendingar fækka kirkjum sínum, eftir því sem þeim fjölgar. Aðrar kristnar þjóðir fjölga kirkjum sínum eftir því sem mannfjöldinn vex. Á 18. öld voru miklu fleiri kirkjur á Islandi en nú á dögum; þó var mannfjöldinn þá eigi meiri en 40—50 þús- undir manna; nú er hann 85 þúsundir. Fúslega skal játað að kirkjurnar hafi þá verið óþarflega margar sumstaðar á íslandi, og að stundum hafi það verið alveg réttmætt að sameina kirkjur, þá er það hefir verið gert. En nú gerast landsmenn svo ákafir um að fækka kirkjum, að úr hófi gengur, og er full þörf á að andmæla því. Það gladdi mig líka, er eg Ias í N. Kbl. 21 tbl. frá 1. nóvbr. f. á. mótmælin gegn hinu fyrirhugaða „kirkjubroti“ í Grímsnesinu, því að þar er eigi hin minsta þörf á að leggja niður kirkjur, og verður varla til annars en að kæla menn við kirkju og kristindóm, eins og greinarhöfundurinn bendir á. Nú er grein þessari mómælt i N. Kbl. 1. febrúar, en engin rök færð fyrir kirknasamsteypunni, nema vegir séu bættir í Grímsnesinu; rétt eins og erfiðara yrði að sækja þrjár kirkjur fyrir það. Og einnig er sagt að kirknaskipun sé af- káraleg í Biskupstungum og i Ölfusinu hafi þær verið illa settar. En hvað kemur það við kirknaskipuninni í Grímsnesi? Man eg þá tíð að hvorki var messufall í Klausturhólum né á Búrfelli, ef veður var fært. Jafnvel i mjög tvísýnu vetr- arveðri sóttu menn kirkju, svo að messufært var, og kom þá stundum fyrir, að margir urðu að vera um nóttina í Klaust- urhólum.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.