Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Qupperneq 9

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Qupperneq 9
NÝTT KIRKJUBLAf) 81 fögru, sönnu og réttu, sem vér vildum styðja hér í lífi, þótt vor missi við! Kristnu vinir! gleymum aldrei Getsemane með hinum angurhlíðu endurminningum. Gleymum aldrei baráttunni, sem þar var háð i næturkyrðinni frammi fyrir augliti guðs! Vér vilum ekki nema guð hafi einnig fyrirbúið oss vort Getsemane vonbrigða og sálarkvíða, og vér viljum þá ekki heldur færast undan þvi, að hann leiði oss þangað inn. En þá só líka bæn vor þessi: Láttu, liknsami faðir vor, vera lifandi í sálu vorri myndina hans, sem í dauðans angist sinni laugaði jörðina með sveita sínum, til þess að vér mættum lifa glaðir í þér og föðurhjálpræði þínu, — gróðursettu hjá oss lunderni hans, svo að vér getum látið bræðrum vorum umburðarlyndi í té, eins og hann, og þér, ástríki faðir, undirgefni og sonarlegt traust, eins og hann; þvi að þá vitum vér, að vort Getsemane breytist úr þrautalundi í blessunarlund. J. H. lálfrelsi presia og afskifii þeirra af félagsmálum. ii. Prédikanir fyrnast sem fat. Er ólíkt með þær og sálm- ana. Uppi eru þeir saman síra Hallgrimur Pétursson og Gísli biskup porláksson, og er Gísli þeirra yngri. Mundi nú enginn endast til að lesa lestur í húspostillu hans. Hver kynslóðin þarf að fá sína prédikun, eftir gömlu reglu meistarans, að fram verði að bera bæði nýlt og gamalt úr forðabúrinu. Og á vakningar og viðreisnartímum, þegar sérstaklega skilar áfram þekking og skilningi mannsandans, koma eðli- lega nýjar og nýjar kröfur til prédikunarinnar, eigi fólkið henni gaum að gefa. Og nú er það tvent sem kemur til greina við þessar hug- leiðingar um málfrelsi presta, eða um efni og innihald prédik- ana þeirra. Annað er það hvað nútíðarprédikunin hefir þetta lif miklu roeir fyrir augum en áður var. Fyr meir var alveg gefin

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.