Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Blaðsíða 11

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Blaðsíða 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ 83 afkomendur heiðnu víkinganna sér undir krossins merki. Og tíðarandinn var nú sá að valdamesti maður aldarinnár var munkur í klaustri. Var það hinn heilagi Bernarð. Og ekki hafði hann annað til vopna en stólræðurnar sínar. Yfir skrifpúltinu sínu í steinklefanuni fátæklega hafði hei- lagur Bernarð ritað á vegginn orðin: „Ad quid venisti, Bernarde?“ — „Til hvers komstu, Bernarð ?“ Orðin þau voru sítalandi áminning til hans við ræðugerðina, að vera nú fastur í rásinni, allur við það eitt er hann var þá að berjast fyrir og hafa fram. Svo mætti segja við margan Sérann, sem sest að skrif- borðinu sínu með óritaða örk innhefta fyrir framan sig, og biblíuna til annarar handar og blekbyttu hinum megin: Til hvers komstu hingað, séra minn ? Eða hvað viltu nú með því að fylla út þessa óskrifuðu örk, sem á að endast þér i upplestri eða tali um nærfelt hálfa stundu? Hvar viltu ná takinu á tilheyrendum þínum ? Á skilningi þeirra um það eður það? £ða á vilja þeirra til að breyta svo eður svo? Eitthvað á út af og upp úr hverri prédikun að koma: Ein- hver trúarsannindi, einhver ákveðin verk. Og þú hittir ekki nema þú sjálfur hafir fest auga á markinu. Munurinn sami og að skjóta ör af beindum boga og að helia úr sáðapoka út í veður og vind. Er það annars ekki nógu eftirtektavert, að varla er svo ómerkileg ritsmíð á ferðinni að höfundurinn byrji ekki með yfirskrift efnisins. Það og það vill liann með þvi sem hann ritar. Hann hefir beint sett sér það og það mark, og valið sér yfirskriftarheitið eftir því. En rétt undantekningarlaust er það, að presturinn byrjar yfirskriftarlaust á ræðu sinni. Og altof oft veit hann sjálfur ekki hvað efnið er, eða hvað hann vill með því að fylla síðurnar. Og þá er ekki von að fólkið viti það heldur. Prestaskólakennarar hafa stundum reynt sig sig á því við prédikunaræfingar að fá stúdentunum miða, um leið og ein- hver þeirra hefir lokið sinni ræðu, og beðið þá að rita á mið- ann, hvað hverjum um sig hafi fundist vera efni eða mark- mið ræðunnar sem með var farið. Hefir þá tíðum ótrúlega ólíkt komið út á miðunum. Og eitthvað svipað gætu menn alloft

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.