Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Qupperneq 13

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Qupperneq 13
NÝTT NlUNJtJBLAfe ð5 ar þó að ræðumaSur sé sjálfur sannfærður um það sem hann fer með. Honum sé það heilagt alvörumál, og hann fynni til þess hve mikið er komið undir framgangi þess máls er hann flytur. Og því sé þá samfara innileg löngun og kærleiksþrá að láta starfið verða öðrum til blessunar. Jesús Kristur talar á einum stað um tegund illra anda sem eigi verði útreknir nema með. bæn. I svo mörgum kirkjum ríkja illir andar eftirtektaleysisins og kæruleysisins. Þeir andar verða helst sigraðir með bæninni — bæninni inni í launklefa prestsins. Prédikarinn er sálnaþjónn. Hver hefir sitt verk að vinna í líf- inu og vér ætlumst til þess að presturinn haldi á lofti trúar- sannindunum. Læknirinn á að hugsa um heilsu líkamans, lagamaðurinn á að vera vörður réttarins, kaupmaðurinn á að greiða fyrir viðskiftum o. s. frv. Til prestsins sækjum vér það sem sálin þarfnast. Vér þurfum upplýsing, huggun, leiðbeining og styrking, — hvað um sig og hvert með öðru. Það er fult af fólki sem er að leiðbeina oss í stjórnmálum og í margskonar gagnlegum fræðum, bókmentum, heimspeki og enda i siðfræðilegum efnum. Þetta er oss eigi nóg. Trú- arþörfm hjá oss vill hafa sitt, og þá kemur til prestsins kasta. Og hann á eins og hver góður starfsmaður í h'finu að halda sér við sitt svæði, trúarmálin. A hverjum degi sækja freistingarnar að oss og vér þurf- um bæði aðvörun og styrking. Alt í kring um oss bjóðast tækifæri til að láta gott af oss leiða, en vér þurfum vakningu til þess að vita af því og leiðbeiuingu til að velja úr. Hugur vor er svo oft fullur af efasemdum og vér þurfum fræðslu með. Vér þurfum að heyra vitnað skýlaust um sannindi trú- arinnar. En um leið farið svo með þau, að skynsemi vor geti aðhylst þau, og þau mæli með sér við vora eigin trúar- reynslu, og hafi sér til stuðnings það sem best er og heiðar- legast í eðli voru. Vonbrigðin steðja að oss og valda oss kvíða. Sárindi lífsins, allur lífsharmurinn er alt í kring um oss og sækir oss tiðum sjálfa heim og vér þurfum að fá ein- hvern skilning á þessu, fá eitthvert ljós inn í þetta myrkur oss til huggunar og djörfungar. Guðstrúin þarf að skína oss í svo skærri og lifandi mynd.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.