Nýtt kirkjublað - 15.10.1914, Qupperneq 2

Nýtt kirkjublað - 15.10.1914, Qupperneq 2
234 NÝTT KIRKJUBLAÐ líkan sér, þá er eigi annarstaðar að líking guðs að leita en ]iar sem maðurinn er. Og hafi guð blásið lífsanda sínum í manninn, þá er andi guðs í manninum, og þar leitum vér op- inberunar guðs. Heiðindómurinn leitaði að guði í náttúrunni og trúin byggist á hræðslu. Gyðingdómurinn leitaði guðs í manndóm- inum, og trúin er fólgin í því — bæði að óttast og elska. Kristindómurinn tekur við þessari grundvallar-kenningu frá gyðingdóminum og staðfestir hana. Langar þig til þess að finna guð? Leita þú hans þá inni í þinni eigin sál! Þetta boðorð sem eg legg fyrir þig í dag er þér eigi um megn og það er eigi fjarlægt þér. Ekki er það uppi í bimninum, svo að þú þurfir að segja: Hver ætli fari fyrir oss upp í himininn og sæki það handa oss og kunngjöri oss það, svo að vér megum breyta eftir því? Og það er eigi hinumegin hafsins, svo að þú þurfir að segja: Hver ætli fari fyrir oss yfir hafið og sæki það handa oss og kunngjöri oss það, svo að vér megum breyta eftir því? Heldur er orðið harla nærri þér, í munni þínum og hjarta þínu, svo að þú getur breytt eftir því. (5. Mós. 30, 11—14). Svo talar einn af hinum miklu spámönnum Gyðinga. Grundvallarkenning gyðingdóms og kristindóms er í þessu efni ein og söm. Eftir eðli sínu er guð og maður eitt. Gyðingdómurinn kendi það að í manninum opinberaðist guð á æðsta stigi, en kristindómurinn bætir því svo við, að alfullkomnust opinberun guðs í mannlegu lífi er í lífi Jesú frá Nazaret. Tvent fer það saman, sem gjörir hann að Messíasi eða Kristi: Fullkomnasta opinberun guðs er opinberun hans í mann- legu lífi, en fullkomnasta opinberunin í mannlegu lífi er opin- berunin í Jesú frá Nazaret. Hann er Messías af því að einmitl hann verður til þess að guð er eigi lengur fjarlægur oss mönnunum, hann kemur því til leiðar að mennirnir fara að geta skilið livað guð er, hann gerir það mögulegt að samband og samfélag komist á milli guðs og manna. í lífi Jesú verður mannleg lífsreynsla til þess að kenna oss hvað guð er. Sú var tíðin að menn hugsuðu sér regindjup staðfest milli guðs og manna, og þá var það skiljanlegt að það væri

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.