Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1931, Page 13

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1931, Page 13
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA nokkur ár. Árið 192fi var það tekið upp aftur og þá kosin nefnd i það. Átti sú nefnd fyrst og fremst að koma með tillögur um gerð fán- ans og safna fje til lians. Meiri hluti nefndar- innar komst fljótlega að þeirri niðurstöðu, að ánægjulegast væri að gera fánann úr islensku togi, listofinn og leituðu um það ráða til kenslukonu i listvefnaði, Brynhildar Ingvars- dóttur, sem þá var á Akureyri. Samtimis var leitað til Iðnaðarmannafjelagsins í Reykjavík um samvinnu um gerð merkis, er nota mætti í fánann og skoða mætti sem táknmynd iðn- aðar alment. Lá þar sú hugsun til grundvallar, að ef samkomulag næðist um siíkt merki, þá skyldi það notað sem iðnaðarmerki um land alt. Á fundi, sem stjórn Iðnaðarmannafjelags- ins hjelt með fulltrúum frá iðngreinunum og fleirum, sem við iðnaðarmál voru riðnir, var kosin nefnd i málið, og voru í henni þeir Helgi H. Eiríksson, skólastjóri. Jón Halldórsson hús- gagnasmíðameistari og Ríkarður Jónsson, myndhöggvari. Eftir miklar bollaleggingar varð nefndin sammála um merki er liún taldi geta táknað allan iðnað í landinu og gæti not- ast í fána allra iðnaðarfjelaga, ef aðeins væri breytt um nafn í því. Ríkarður Jónsson teiknaði nú merkið en Einar Gíslason málari litaði og málaði um það bláan fána, sem síðan var sendur norður. Á fundi 1928 samþykti svo fje- lagið með miklum meiri hluta atkvæða að fela fánanefnd sinni að láta gera fánann úr togi og eftir fyrirmyndinni að sunnan. Hefir öllum komið saman um að þetta liafi tekist vel, enda var i alla staði reynt að vanda til verksins. Mæðgurnar Ingibjörg Þórðardóttir og IJalldóra Jónsdóttir á IJofi í Svarfaðardal tættu efnið og spunnu, bæði í uppistöðu og ivaf, Jónas Þór verksmiðjustjóri á Akureyri litaði ivafið, alls 14 lili, en Brynhildur Ingvarsdóttir óf fánann. Stöng og annar útbúnaður er gerður af smið- um Akureyri, en Sveinbjörn Jónsson, sem var form. fánanefndar, hafði aðalumsjón með fram- kvæmd verksins. Fáninn var að mestu fullgerður i maí 1930 og var þá i fyrsta sinn borinn fyrir Iðnaðar- mannfjelagi Akureyrar við jarðarför Páls Ár- dals skálds og konu hans, en Páll var heiðurs- fjelagi Iðnaðarmannafjelagsins. Síðan var fán- inn sendur á Landssýninguna 1930 og hlaut þar alment lof sem dýrmætt listaverk. Með öllum útbúnaði kostar fáninn um 1700 kr., og er því fje safnað með frjálsum sam- skotum og happdráttum meðal fjelagsmanna. Svbj. Jónsson. Það er Iðnaðarmannafjelagi Akureyrar og öllum aðstandendum til hins mesta sóma að hafa komið upp þessum fallega og listgerða fána sínum. Æskilegt væri það einnig, að sam- komulag næðist meðal iðnaðarmanna um alt land um eiií iðnmerld, sem öll fjelög gætu notað með nafnreytingu aðeins. Þarf það að vera þannig, að það feli í sjer eitthvað það, sem við allan eða flestan iðnað er notað. Það þarf að vera laglegt og smekklegt en þó einfalt og auðgert. Alla þessa kosti virðist merkið í Ak- ureyrarfánanum hafa. Einstaka raddir hafa lieyrst um það, að gyðja eða kvcnmaður, nakinn eða klæddur, væri tilvalið merki eða tákn iðnaðar, og hafa þá einkum Iðunni i liuga. En Iðunn var gyðja, kona skáldguðsins Braga, og liafði það hlut- verk að gæta liinna eilífu ungdómsepla. Hafa Ásynjur og aðrar gyðjur jafnan verið tákn vísinda og lista, og er iðnaðarmönnum lítt sæm- andi að þurfa að linupla þeim þaðan. Væri þá hugkvæmnin lítil og ímyndunin ófrjó, ef ann- ars væri ekki úrkosta. — Er vonandi að iðnað- armenn i Reykjavík geti fallist á liið fallega merki, sem Akureyringar hafa þegar tekið i fána sinn. Ritstj. Hjálp í viðlögum. Helstu atriði. Eftir Davíð Scheving Thorsleinsson, lækni. I þeim kafla af grein þessari, sem birtist í síðasta hefti Tímaritsins, er þess getið, að í kolagasi sje venjulega brennisteinn og þessvegna brennisteinslykt af gasinu. Petta er því aðeins rjett, að ekki liafi tek- ist að hreinsa gasið fullkomlega. Af vel hreinsuðu gasi úr góðum kolum á ekki að vera nein brenni- steinslykt. Aftur á móti er af venjulegu kolagasi á- lcveðin lykt, sem er sjerstök fyrir þá tegund kolvetna, sem gasið er aðallega myndað af, og leynir sú lykt sjer ekki, sje nokkuð að ráði af gasi í húsinu. [ 7 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.