Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1931, Síða 18

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1931, Síða 18
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA þeirra manna, er leggja stúnd á innlendan iðnað og iðju. 4. Að Alþingi styrki iðnaðarfjeiögin til að koma sjer upp skólahúsum og til kaupa á fullkomnum kensluáhöldum, og að í sam- bandi við skólann í Reykjavík verði komið á fót vísindalegri tilraunastofnun og rann- sóknarstofu, er geti leiðbeint iðnaðarmönn- um og styrkt þá í slarfi þeirra. 5. Að Alþingi veiti ríflegan styrk til utanfarar ungra iðnaðarmanna til verklegs framhalds- náms og að styrkurinn verði ekki veittur, nema eftir tillögum frá iðnaðarráðunum. 6. Að þingmenn floklcsins taki upp og beiti sjer fyrir tillögum um breytingar á lögum um iðju og iðnað, svipuðum þeim, sem Magnús Jónsson alþingismaður var með- flutningsmaður að á síðasta Alþingi. Þingmenn flokksins tóku síðan upp öll þessi atriði á þinginu í vetur, og fluttu frumvörp eða þingsályktunartillögur um framgang þeirra. En vitanlega stöðvaðist það alt af þingrofinu. III. Á flokksfundi Framsóknarflokksins í apríl síðastliðnum voru samþyktar svobljóðandi til- 1. Að keppa beri að þvi, að efla innlendan iðn- að, einkum úr þeim liráefnum, er framleidd eru í landinu sjálfu og þá sjerstaklega vinsla þeirra vörutegunda er landsmenn sjálfir nota. 2. Að ríkið leitist við að efla beimilisiðnað, belst í samráði við Heimilisiðnaðarfjelag íslands eða eftir tillögum annara, er bafa sjerstaklega kynt sjer það mál. 3. að heimiluð sje ivilnun i tollum á þeim að- fluttum bráefnum, sem iðnfyrirtæki nota til vinslu. 4. Að rikið styrki niðursuðu á mjólk, lielst í sambandi við mjólkurbú á sama hátt og nú eru styrkt smjör og ostabú. 5. að lögð verði áhersla á að koma á fram- haldsvinslu sjávarafurða. (i. Að styrkveitingar og önnur lilunnindi af liálfu liins opinbera til banda iðnfyrirtækja sje bundið því skilyrði, að nægileg sjerþekk- ing sje trygð viðkomanda fyrirtæki. Frá Iðnaðarmannafjelaginu. Aðalfundur Iðnaðarmannafjelagsins í Reykja- vík var haldinn 26. mars siðastliðinn. Formað- ur gaf skýrslu um starf f jelagsins á liðna starfs- árinu. Fjelagsfundir böfðu verið 10 að með- töldum aðalfundi og 16 bókaðir stjórnarfundir. Helslu málin, sem rædd böfðu verið á þessum fundum, voru, Búð á Þingvöllum, Fáni fyrir fjelagið, Bygging nýs iðnskólaliúss, Jarðarfara- sjóður og Áskorun um öflun meira Veðdeild- arfjár. I því máli var samþykt svohljóðandi tillaga: „Fundurinn felur stjórn fjelagsins að skora á þing og landsstjórn að blutast til um að gefin verði út heimildarlög til þess að gefa út nýjan flokk Veðdeildarbrjefa og að útvegað verði l'je til kaupa á veðdeildarbrjefum“. Á fundum fjelagsins liöfðu þessir flutt erindi: 3. apríl: Vigfús Sigurðsson um Grænlands- ferðir. 1. maí: Ársæll Árnason um bjera á Græn- landi. 15. okt. Guðmundur Gamalíelsson um Nor- egsför. 4. des. Guðbjörn Guðmundsson um Nor- egsför. 21. jan. Guttormur Andrjesson um Nýtísku byggingalist (Funktionalisma). Formaður, Ársæll Árnason, átti að ganga úr stjórninni, en var endurkosinn og varaformað- ur var sömuleiðis endurkosinn Jón Ilalldórs- son. Skemtinefnd og tímaritsnefnd voru sömu- leiðis endurkosnar og Magnús Benjamínsson i skólanefnd. Á fundinum var samþykt að gera þá Ilalldór Þórðarson, bókbindara og prentsmiðjustjóra og Sigvalda Bjarnason trjesmiðameistara að beiðursfjelögum. Ritgerðum og auglýsinguni sje komið til ritstjórans, Helga H. Eiríkssonar, pósthólf 184. Afgreiðslu tímaritsins annast Ársæll Árnason bóksali, Laugaveg 4. Prentstaður: Herbertsprent. Bankastræti 3. Sími 635. [ 12 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.