Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Síða 6

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Síða 6
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA Iiann að heyskap á sumrum en stundaði smið- ar aðra tíma árs. Vorið 1885 var námstími Davíðs á enda. Fluttist hann þá til Akureyrar og hefir jafnan síðan verið húsettur þar. Tók hann nú að stunda smíðar einvörðungu, en vann fyrstu árin und- ir annara stjórn. En vorið 1890 hóf hann smiðar á eigin ábyrgð, og hygði á næstu árum allmörg hús, hæði á Akureyri og í nærsveitunum. M. a. var liann við byggingar að Grund i Eyjafirði öðru livoru alt að 4 árum, einnig var hann við smíði Gagnfræðaskólahússins á Akureyri (nú Mentaskóla Norðurlands) með Sigtryggi bygg- ingameistara Jónssyni. Vorið 1916 hætti Davíð húsasmíðum að mestu, og liefir hann siðan stundað trjesmiðar á vinnustofu sinni, oftast einn og i smáum stíl á seinni árum. Hefir hann nú unnið að smiðum næstum óslitið í 50 ár; þá rak hann dálitla versl- un 3—4 ár, en smíðaði altaf jafnframt. Davið hefir altaf notið trausts og virðingar samhorgara sinna, þótt lítt hafi hann liaft sig í frammi, og ekki sje hægt að segja, að hann hafi haft mikil afskifti af opinberum málum. Hann sat í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar um eitt skeið og í niðurjöfnunarnefnd. í sóknarnefnd Akureyrar hefir liann átt sæti i 40 ár og lengst af verið formaður liennar á því tímahili. Davíð hefir verið heilsugóður alla æfi og er enn vel ern, þótt nokkuð sje hann slitinn orð- inn, sem ekki er að furða, eftir svo langan og góðan starfsdag. Á síðustu árum liefir hann fundið all mikið til sjóndepru, er var svo ill- kynjuð, að liann varð að leita sjer lækninga gegn henni hæði lieima og erlendis. Hlaut hann við það nokkra hót þessa meins, svo að nú helst sjón lians nokkum veginn. Um langt skeið hafði Davið pilta til kenslu í trjesmíðum og eru nemendur hans nú viða dreifðir um bygðir landsins. Davið er kvæntur hinni mestu myndar og sóma konu, Þórdísi Stefánsdóttur prests Pjet- urssonar á Hjaltastað. Hefir heimili þeirra lijóna altaf verið fyrirmynd að reglusemi og allri prýði. Davíð hefir jafnan verið manna jafnlyndast- ur og lífsglaðastur, þótt hann hafi löngum átt við ýmsa erfiðleika að etja, eins og aðrir á svo langri æfi. Er liann livers manns hugljúfi, er af honum liafa kynni. Er lengi hjart yfir minn- ingu slíkra manna. Davíð var einn af stofnendmn Iðnaðarmanna fjelags Akureyrar, og hefir jafnan verið með- limur þess og i stjórn félagsins mn eitt skeið. Var hann kjörinn heiðursfjelagi þess um sið- ustu áramót. J. íslenska vikan var haldin i þetta sinn dagana 30. april til 6. maí. Hjer í liöfuðstaðnum har heldur minna á vörusýningunum en í fyrra, en aftur meira á hlaðauglýsingunum. Þó er ekki því að neita, að hæði iðnsýningin í fyrra og vörusýningar „ís- lensku vikunnar“ eru smátt og smátt að sann- færa almenning um, að hjer má nú orðið fá æðimargt af því, sem til skamms tíma liefir ver- ið talið óhjákvæmilegt að sækja til útlanda, hæði af matarvörum og áhöldum og úthúnaði. Mun lijer verða getið um sumt af þvi, sem ný- legt er og markvert í iðju- og iðnaðarstarfsemi síðustu áranna. Járniðnaðurinn. Járnsmíðin er ein elsta iðngreinin hjer á landi, en járniðnaðurinn í sinni núverandi mynd tiltölulega nýr. Mun óhætt að fullyrða, að í fáum iðgreinum liafi orðið jafnmiklar framfarir á siðustu 10—20 árunum og einmitt í járniðnaði. Getur verið, að sumum finnist hjer djúpt tekið i árinni, þvi almenningur hafi að- eins lítillega orðið stórfeldra framfara var hjá þessari iðngrein, en það stafar af því, að það eru aðeins fáir, aðallega viss stjett manna, út- gerðarmennirnir, sem not hafa haft af þessari auknu og umbættu framleiðslu þessara iðnað- armanna. Það er aðeins síðustu árin, sem þeir hafa fært það mikið út kvíarnar, að smíða nýja hluti til almenningsþarfa, sem áður hafa verið sóttir til útlanda, og sú framleiðsla er enn ekki orðin almenningi kunn. Verður húri það þó vonandi áður en langt um líður. En til þess [ 4 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.