Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Qupperneq 14

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Qupperneq 14
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA í sambandi við samtakaleysið, mætti koma í gott liorf á stuttum líma ef samtökin væru nægilega öflug. 2. í sambandi við sameiginleg innkaup á viði má geta þess, að allar peningastofnanir eru svo að segja lokaðar liúsgagnasmiðum, nema ef til vill örfáum þeim stærstu. Þetta á mestan þátt í því, að ekki hefur verið hægt að gera hagfeld innkaup á efni. Algengasta leiðin, sem farin er, mun vera sú, að kaupa viðinn í smásendingum, gegn 3ja mánaða víxli. Þetta fyrirkomulag er alveg ótækt til frambúðar, það vita allir, sem það hafa reynt. Það er nú liðið eitt ár síðan sparisjóður iðnaðarmanna var stofnaður í Reykjavík. Ennþá býður sú stofnun þau kjör, að ómögulegt er fyrir iðnaðarmenn að nota þau. Vöntun á ódýru rekstursfé er orðin svo mik- il, að ómögulegt er fyrir þing og stjórn að Jiundsa það mál lengur. 3. Fæð kaupenda stafar ekki eingöngu af fólksfæð, heldur einnig af peningaleysi því, sem nú þjáir allar millistjettirnar. Á góðum tímum kaupa þær og verkamennirnir talsvert af hús- gögnum, því þær stjettir hafa að heita má, verið liúsgagnalausar. Þessi markaður er nú al- veg lokaður, og mun ekki opnast aftur, fyr en batnar í ári, og húsgagnasmiðir geta lækkað verðið á framleiðslu sinni. Það er ekki hægt að lækka verðið á hús- gögnum nema með því að umskipuleggja þessa iðngrein. Dýrt efni á mestan þátt í því, að hús- gögn eru svo dýr hjer á landi. Jeg hefi hjer drepið á þá leið, sem reynt verður að fara til að lækka þann lið. Yfirleitt eru vinnulaun- in ekki hærri hjá þessari iðngrein, heldur en öðrum skyldum, svo þau mega ekki lækka. J. Jeg mintist á fábreytni í vörúm þeim, sem notaðar eru til húsgagna. Þar á eg aðallega við bæs, skrár, lamir, skilti og ótal margt fleira, sem mikið er jiotað. Verslanir þær, sem þess- ar vörur selja, hera fyrir sig tvent, þegar þær eru ásakaðar um þessa fábreytni. Annað er það, að húsgagnasmiðir geri ekki meiri kröfur en þetta, og hitt að innflutningshöftin eigi sök á þvi, hvað fátt sje til. Af hvoru, sem þetta stafar, þá verður það að lagast í nánustu fram- tíð. Eg vil í þessu sambandi minnast þess, að ís- lenskt áklæði er ekki hægt að fá, enda þótt ull- iu sje i lágu verði og htt seljanleg. Eg vil skora á islenskar dúkaverksmiðjur að hæta úr þessu fyrir næstu íslensku viku. Nú á síðustu tímuni liefur talsvert aukist áhugi manna fyrir heima- ofnu ákiæði, svo jeg vildi nota tækifærið og ljiðja heimilisiðnaðarfjelögin að sjá um, að alt- af sje nóg af því á bösurum eða i öðrum út- sölustöðum íslensks vefnaðar. Að síðustu vil jeg fara nokkrum orðum um útlit (stíl) þeirra liúsgagna sem sýnd voru á íslensku vikunni. Nú má segja að það sje að mestu horfinn jjessi óskaplegi ,,prislistastíll“, sem var um um tíma búinn að hertaka íslenska húsgagna- smíði. í hans stað er jkominn sá stíll, sem mest er notaður á stórframleiðsluhúsgögnum i Þýska landi, og er hann sæmilegur útlits. Annars mun jeg síðar fara nánar út i það mál. Jónas Sólmundsson. „íslenska vikan á Suðurlandi.“ Deild á Suðurlandi fvrir ísl. vikuna, var stofn- uð mánudaginn 15. maí. Var sá stofnfundur framhald af öðrum fuudi, sem haldinn liafði verið til stofnunarinnar, en þótti málið ekki nægilega undirhúið til endanlegrar ákvörðunar. A þessum fundi var skýrt frá því, að 70 ein- staklingar, iðn- og iðjufyrirtæki væru komin í deildina. Var síðan rætt og samþykt frum- varp til laga fvrir deildin, og fer það hjer á eftir: Lög fyrir fjelagið „fslenska vikan á Suðurlandi“. 1. gr. Xafn fjelagsins er „íslensku vikan á SuÖurlandi". Heiniili ]>ess er i Reykjavík. FjelagiÖ er stol'nað til Jtess að vinna að bættum þjóðarbúskap íslendinga, ])annig að innlend viiina, afurðir og afrek sje öðru fremur notað, ef verð og gæði eru áþekk. [ 12 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.