Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Blaðsíða 15

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Blaðsíða 15
T 1 M A R I T IÐNAÐARMANNA 2. gr. Þessum tilgangi sínum vill fjelagið ná með þvi: 1. Að gangast fyrir þvi i sambandi við Landssam- bandið íslenska vikan (L. í. V.) að haldin sje íslensk vika árlega yfir land alt. 2. Með skýringa- og auglýsingastarfsemi i blöðum og tímaritum, fyrirlestrum, fundarhöldum, sýn- ingum og öðru sliku. 3. Með hvatningum til valdhafanna og starfsmanna hins opinbera um að innlendar vörur, skip og vinna gangi fyrir erlendum i öllum rekstri hins opinbera og annarsstaðar. 4. Með þvi að vinna að þvi að öll innlend fram- leiðsla sje merkt sameiginlegu merki. 5. Með þáttöku i landssambandi fjelaga i öðruin landshlutum, er vinna á sama grundvelli og að sama markmiði. 3. gr. Starfssvið fjelagsins er Sunnlendingafjórðungur hinn forni. 4. gr. Fjelagar geta orðið: A. Fjelög, se styðja vilja viðleitni þá, sem um ræð- ir í 1. og' 2. gr., enda sjeu fjelagar eigi færri en 10. B. Innlend iðnaðar-, iðju- og verslunarfyrirtæki. €. Smá iðnrekendur og smá verslanir. D. Einstaklingar. Stjórn fjelagsins sker úr um rjett þess er inn- tölui beiðist, til þess að verða fjelagi og í hvaða flokki. Hún getur og vikið fjelögum burtu, ef á- stæða þykir til. Allan ágreining um þessi efni má bera undir aðalfund, er sker úr til fullnaðar, nema ástæða þyki lil að visa málinu til sambandsstjórnar. 5. gr. Fjelagar greiða gjald í fjelagssjóð, annaðhvort við inngöngu, eitt skifti fyrir öll eða árlega fyrir áramót. Upphæð gjaldsins er sein hjer segir: A. Gjald í eitt skifti fyrir öll: 1. Fyrir fjelaga samkv. A. lið 4. gr. kr. 10,00 fyr- ir 10—100 meðlimi, og kr. 10 fyrir hverja 100 meðlimi þar yfir. 2. Fyrir fjelaga samkv. B. lið 4. gr. . . kr. 50,00 3. Fyrir fjelaga samkv. C. lið 4. gr.. . . kr. 10,00 4. Fyrir fjelaga samkv. D. lið 4. gr. . . kr. 2,00 B. Árlegt gjald er helmingur af inntökugjaldi. 0. gr. Aðalfundur fjelagsins hefir æðsta vald í öllum inálefnum þess, með þeim takmörkunum, sem L. í. V. ákveður. Aðalfundur skal haldinn einu sinni á ári fyrir 15. júní, og á þeim stað innan fjórðungs, sem siðasti aðalfundur hefir ákveðið. Fundur er lögmætur, ef til hans hefir verið boðað með 6 vikna fyrirvara í tveim víðlesnum blöðum. Aukafundi skal halda, er meiri hluta fjelagsstjórn- ar þykir við þurfa, þegar stjóm landssambandsins óskar þess, eða þegar % hluti atkvæðisbærra fje- laga krefst þess skriflega. 7. gr. Allir fjelagsmenn geta mætt á fjelagsfundum, og hafa þar málfrelsi og atkvæðisrjett ásamt þar til kjörnum fulltrúum, kosnum af fjelögum þeim, sem um ræðir í a.-lið 4. gr. á lögmætum fundi hlutað- eigandi fjelags, enda sjeu þeir félagsmenn annað- hvort þar eða í þessu félagi. Varafulltrúar skulu kosnir jafnmargir og aðalfull- trúar á sama tíma. Mæta þeir i forföllum aðalmanna. Fulltrúafjöldi er sem hjer segir: Fjelag 10— 50 manna kýs 1 fulltrúa — 50—100 — — 2 — — 100—200 — — 3 — ’ óg siðan 1 fulltrúa fyrir hvert heilt hudrað fjelags- inaima. Fulltrúar skulu sanna fjelgsstjórn fulltrúarjett sinn áður en fundur hefst. Verði ágreiningur sker fund- urinn úr, en skjóta má ágreiningnum til sambands- stjórnar. Stjórnármenn mæta á fundum með fullum rjettiud- um svo og sambandsstjórnarmenn, eða uinboðsmenn sainbandstjórnar. Hinir síðartöldu hafa þó því að- eins atkvæðisrjett að þeir sjeu kjörnir fulltrúar eða í stjórn fjelagsins. 8. gr. Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi inál: t. Stjórn fjelagsins leggur fram endurskoðaða reikn- inga fyrir s.l. ár og skýrir frá hag þess og störf- um á liðnu ári. 2. Lögð fram, rædd og athuguð erindi L. í. V. og skýrslur. 3. Kosnir fulltrúar á sambandsfund L. í. V. 4. Kosin stjórn og varastjórn. 5. Kosnir endurskoðendur. 0. Önnur mál. 9. gr. Starfs- og reikningsár fjelagsins er almanaksárið. 10. gr. Stjórn fjelagsins er skipuð fiimn mönnum. Þeir víkja úr stjórninni þannig að tveir fara eftir eitt ár, tveir eftir tvö og einn eftir þrjú, og siðan á sama hátt, þannig að hver situr þrjú ár. Varastjórn kosin á sama hált. Hlutkesti ræður úrgönguröð í fyrstu. Stjórnin kýs sjer formann, ritara og gjaldkera úr sínuin flokki. Hún heldur fundi þega þurfa þykir og kveður formaður hana sainan með hæfilegum fyrirvara. Fund skal halda svo fljótt sem auðið er, ef tveir stjórnarmenn óska, ef sambndsstjórn mælist til þess, eða ef fjelagsfundur samþykkir. [ 13 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.