Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1939, Blaðsíða 7

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1939, Blaðsíða 7
1. HEFTI — 12. ÁRG. 1939 TIMAIRIT IÐNAPAIRMANNA GEFIÐ ÚT AF LANDSSAMBANDI IÐNAÐARMANNA í REYKJAVÍK . ixarp Arið 1938 uvöu engir stórviðburðir í sögu íslenzks iðnaðar og atvinna islenzkra iðnaðarmanna og afkoma var misjöfn eftir iðnum, atvikum og staðháttum. Þó verður að telja, að árið hafi verið sæmilegt að þessu leyti, og atvinnuskilyrðin í skárra tagi. Þróun undanfarinna ára hélt áfram i sömu áti, iðnaðarmenn stóðu og siörfuðu saman í flestum málum, og trygðu aðstöðn sina á grundvelli þeirra ákvarðana, er félag- skapur og samtök þeirra höfðu tekið á undanförnum iðnþingum. Iðju- fyrirtækin hafa yfirleitt þrifist vel, ný fyrirtæki tekið til starfa, nýjar uppfinningar og tilraunir komist til framkvæmda og nýr árangur og ný reynsla fengist af ýmsum þeim athugunum, sem menn hafa haft með höndu/n á þessu sviði. Vinnutruflanir hafa verið með minsta móti, og þótt ýmis ágreiningur hafi risið upp og nokkrir smærri árekstrar orðið, þá hafa þeir ekki orðið til verulegs meins, en aðeins haldið athyglinni vakandi. En eftir að hafa litið um ö.rl til liðna tímans, ber að snúa við og horfa jram til ársins 1939. Hvers megum vér vænla af því? Það eru stór og dökk ský á lofti, er mæta augum vorum, efnisskortur vegna gjaldeyris- vandræðanna og þverrandi kaupgeta almennings vegna atvinnuleysis og óvissu um framtíðina. Hvort þingi og stjórn tekst að greiða þar úr, verður engu spáð um hér. En liitt vildi ég le.ggja áherzlu á, að því meiri hætta, sem er á ferðum, því meiri erfiðleikar, sem mæla oss, því meira ríður á því, að halda fast saman og vinna í bróðerni og einlægni að því, að greiða úr vandræðunum og láta engum sundrungaröflum né óheil- indamönnum líðast að tvístra kröftunum né rífa niður það, sem þegar hefir verið bygt upp með margra ára elju og átökum. Með þeim ásetningi skulum við allir horfa vonglaðir og vígdjarfir fram í tímann. Þökk fyrir samstarfið érliðna árinu! Gott og farsœlt nýtt ár! HELGl H. EIRÍKSSON. 1

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.