Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1939, Blaðsíða 19
Tímarit iðnaðarmanna.
Frá störfum
sambandsstjórnar.
Árið 1937 voru haldnir 25 reglulegir, bókaðir
stjórnarfundir og hefir þegar verið skýrt frá 1()
þeirra hér í ritinu áður. Á hinum 9 hafa verið
til meðferðar 121 mál, þar af 13 erindi frá
stjórnarráði Islands, 5 frá sýslnmönnum
(Barðastrandar- og Eyjafjarðarsýslu), 3 frá iðn-
ráðum (á ísafirði og Siglufirði og i Vestmanna-
eyjum) og 29 frá iðnaðarmannafélögum og iðn-
félögum. Ilin 21 hafa verið frá einstaklingum
og fyrirtækjum. Sextiu og þrjú af þessum mál-
um hafa verið iðnréttindamál. 7 umsóknir um
að fá viðurkendar nýjar iðngreinar, nfl. híla-
smíði, bílasprautun, bílkassaviðgerðir, bursta-
gerð, parketlagnir, pylsugerð og verkfæravið-
gerðir. Tillögur hafa verið gerðar um að lnla-
smíði yrði tekið upp sem sériðn en ekkerl
af hinu. Beiðnir um lán úr Iðnlánasjóði hafa
verið 5, beiðnir um skatt- og útsvarsfrelsi 3
(Nærfatagerðin og málningarverksmiðjurnar
„Harpa“ og „Litir og Lökk“) og beiðni um dval-
arleyfi fyrir útlending ein (Raftækjaverk-
smiðja). Sex erindi voru frá Norðurlöndum og
fjögur frá Alþjóðasambandinu og öðrum lönd-
um, þar á meðal um iðnsýninguna i Berlín og
möguleika til þátttöku í lienni af Islands hálfu.
Eins og kunnngt er, gat ekki orðið af því vegna
peningaleysis.
Af sérstökum málum, sem Sambandið hafði
með höndum, skal getið stofnunar Iðnaðar-
mannafélags í Stykkisbólmi og inntöku þess í
Samhandið, inngöngu Sambandsins í Alþjóða-
sambandið, liafði áður verið leitað umsagnar
allra Sambandsfélaga um það mál, og sömu-
leiðis um ráðningu forseta fyrir gerðardóm
Landssambands Iðnaðarjnanna. Höfðu vfir 20
félög mælt með inngöngu i Alþjóðasambandið,
og með ráðningu ísleifs Arnasonar prófessors
sem formanns gerðardómsins.
Þá hafði stjórnin til meðferðar og undirbún-
ings skrifstofumál Sambandsins og setti á stofn
fasta skrifstofu í Suðurgötu 3 þ. 1. nóv. 1937,
en flutti hana 1. okt. síðastliðinn í Kirkjulivol
við Kirkjutorg. Skrifstofustjóri er Sveinbjörn
Jónsson, byggingameistari. Einnig voru til at-
hugunar nokkur lagafrumvörp frá Alþingi, þar
á meðal frumvörp til laga um bókhald, bráða-
birgðaverðtoll, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Loks hefir Sambandsstjórnin á þessu timabili
haft íil meðferðar nokkur ágreiningsmál. Skal
liér getið um eftirfarandi:
1. Lögreglustjóri i kaupstað úti á landi liafði
ekki talið sér lieimilt að láta af hendi meist-
arabréf til manna, er ekki liöfðu sveins-
bréf, þótt þeir hefðu verið farnir að starfa
sem meistarar fyrir 1928 og liefðu meðmæli
iðnráðs. Var Stjórnarráðið beðið að gefa
út tilkynningu um þetta efni, og liefir því
verið kypt i lag.
2. Ágreiningur var um það við félag pípulagn-
ingamanna hér i Reykjavik, að hve miklu
leyti vatnslagnir i götukerfi í bæjum til-
beyrði þeirra iðn án frekari undirbúnings.
Var leitað upplýsinga um þetta efni frá
nágrannalöndum vorum, en enginn úrskurð-
ur kveðinn upp ennþá.
3. Ungur hérlendur maður hafði stundað raf-
virkjanám erlendis í 2 ár til undirbúnings
frambaldsnámi í rafmagnsfræði. Hann vildi
nú fá að ljúka verklega náminu liér beima
vegna gjaldeyris-örðugleika, en fékk ekki
vegna mótstöðu sveinafélagsins. Var að lok-
um farið fram á það, að stjórnarráðið hlut-
aðist til um skynsamlega lausn á málinu.
4. I kaupstöðum úti á landi höfðu farið fram
sveinspróf, án þess að löglega væri farið
að. I öðrum staðnuni var prófnefnd ekki
fullskipuð og ekki skipuð af lögreglustjóra,
en í hinum vantaði mikið lil að nemandinn
hefði leyfi lil þess að ganga undir sveins-
próf, og sveinsbréf ólöglega gefið úl.
5. Trésmíðafélag Reykjavíkur kærði yl'ir þvi,
að liúsgagnasmiður hafði smíðað eldhús-
innréttingar í húsi í Reykjavík. Nú liafði
Sambandsstjórnin áður úrskurðað, að I)áð-
um iðngreinum væri heimilt að smíða laus-
an eldliúsbúnað. Til jjess að ákveða, hvort
hér væri um lausan eða fastan eldhúsbún-
að að ræða, fékk Sambandsstjórnin aðila
13