Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Síða 11

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Síða 11
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949 g. Iðnbókasafn í Reykjavík .... kr. 2.500.OO Auk þess hefir bæjarsj. Rvíkur veitt til byggingar Iðnskólahúss kr. 300.000.oo og til reksturs Iðnskóla í Rvík kr. 85.000.oo 10. Spjaldskrá yfir iönaðarmenn. Skrásettir eru nú 3060 iðnaðarmenn í 60 iðn- greinum. Skrifstofan hefir sent út eyðublöð til allra sambandsfélaganna, og beðið um ýmsar upplýsingar sem vantað hefir á spjaldskrána. Félögin hafa brugðist vel við þessu, sent þær upplýsingar sem beðið var um, og verður þessu verki haldið áfram. 11. lönfræösla. Eins og kunnugt er, var á 9. Iðnþinginu gerð- ar ýmsar breytingar á frumvarpi til laga um iðnfræðslu. Eftir að búið var að samræma þær við frumvarpið, var það sent iðnaðarmálaráð- herra til fyrirgreiðslu, og hann beðinn að at- huga það og láta flytja það á Alþingi sem stjórn- arfrumvarp er honum þætti það tímabært. Frumvarpið hefir ekki enn komið fram á Al- þingi.*) 12. Iðnskólafrumvarpið. Hinn 16. júní 1941, var samkv. þingsályktun skipuð milliþinganefnd í skólamálum. I nefnd- inni eiga sæti Ásmundur Guðmundsson, form., Aðalbjörg Sigurðardóttir, Ármann Halldórsson, Kristinn Ármannsson, Ingimar Jónsson. Helgi Elíasson og Sigfús Sigurhjartarson. Eins og sagt er frá í síðustu skýrslu stjórnar Landssambands iðnaðarmanna, hafði mennta- málanefnd neðri deildar Alþingis, sent frumvarp það til laga um iðnskóla er samþykkt var á Iðn- þinginu 1945, til umsagnar milliþinganefndar í skólamálum. Nú hefir milliþinganefnd í skóla- málum samið frumvarp til laga um iðnskóla, og verður það tekið til umræðu á þessu Iðnþingi. Öllum þeim ályktunum er síðasta Iðnþing gerði og varðaði ríkisstjórn og opinbera aðila, var strax komið á framfæri að þinginu loknu. *) Frumvarpið er nú orðið að lögum. II. ERINDIVIÐ RÍKISSTJ. OG OPINB. AÐILA. 13. Iðnfulltrúar. Samkv. 1. gr. laga nr. 100, 11. júní 1938, hefir ráðuneytið skipað eftirtalda menn iðnfulltrúa til 30. júní 1950: Kristjón Kristjónsson. fulltrúa. skipaðan af ráðuneytinu, Einar Gislason, mál- arameistara, samkv. tilnefningu Landsambands iðnaðarmanna, og til vara, Sveinbjörn Jónsson, forstjóra, Guðmund Halldórsson, prentara, sam- kv. tilnefningu Iðnráðs Reykjavíkur, og til vara, Júlíus Björnsson, rafvirkjameistara. llf. Lög um eftirlit með verksm. og vélum. Samkv. tillögu til þingsályktunar, sem sam- þykkt var á Alþingi 16. maí 1947, um endurskoð- un á lögum um eftirlit með verksmiðjum og vélum, og reglugerðum þar að lútandi, óskaði ráðuneytið eftir því, að Landssamband iðnaðar- manna tilnefndi einn mann í nefndina. Tilnefnd- ur var Guðm. H. Guðmundsson, húsgagnasm.m. gjaldkeri Landssambandsins. Hefir nefndin þeg- ar samið frumvarp til laga um þetta efni, og verður það tekið til athugunar í sambandi við leiðbeiningar um slysahættu. 15. Stéttaráðstefnan. Þann 8. sept. 1947, barst Landssambandinu eftirfarandi bréf frá forsætisráðuneytinu: „Vegna þess, hversu alvarlega horf- ir í atvinnu-, fjárhags- og gjaldeyrismálum þjóðarinnar, þykir ríkisstjórninni nauðsyn til bera, að kalla saman ráðstefnu með full- trúum frá launastéttunum og samtökum framleiðenda tíl sjávar og sveita, til þess að ráðgast við fulltrúa stéttarsamtakanna um leiðir til þess að vinna bug á aðsteðjandi vandkvæðum, og um þátttöku stéttanna á því að tryggja arðbæran atvinnurekstur í landinu. Hefir ríkisstjórnin því ákveðið, að ráðstefna þessi skúli hefjast fimmtudaginn 11. sept. 191/7, kl. lf siðdegis í Alþingishús- inu. Samtök þau, sem rikisstjórnin óskar eftir að sendi fúlltrúa á ráðstefnu þessa eru: 29

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.