Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 32
Iönaðarritið 3.- 4. XXII. 1949
Frá sambandifélögnnuiii
IÐNAÐARMANNAFÉLAG NORÐFJARARD
Aðalfundur þess var haldinn 20. febrúar s.l. Formaður
minntist Sigurðar Þorleifssonar bátasmiðs, sem lést 19.
okt. s.l.
S.l. ár voru haldnir 6 félagsfundir og 14 stjórnarfundir.
Félagar eru nú 35. þar af 3 heiðursfélagar. Einn sagði sig
borðum, 1x4”, með 14” klossa á milli á 3 til 4
stöðum. Á stoðunum hvíla bitarnir, þegar slegið
er undir loftið.
Mótin eru spennt saman þannig að gegnum
boruðum haus (formclamps) með stálskrúfu er
rennt upp á teinana og hert að með þar til gerðu
áhaldi. (Sjá mynd). Þegar mótin hafa verið
skrúfuð hæfilega saman, er hausinn festur á
teininn með stálskrúfunni. Á þennan hátt verða
mótin mjög traust og svo að segja óhagganleg.
Er þetta miklu fljótlegra en að vírbinda mót á
venjulegan hátt. Nota má sömu teinana á mörg
hús ef hirðusemi er við höfð.
Að lokum er slegið undir loftin á venjulegan
hátt. Annars væri það verkefni fyrir hugkvæma
menn að finna hentugri leiðir við uppslátt lofta.
Flekarnir entust mjög vel og notuðum við þá
síðan. En nú eru þeir orðnir það gisnir að varla
er hægt að nota þá sem steypumót framar.
Hefðu þeir verið smíðaðir úr gólfborðum, myndu
þeir hafa enzt enn betur. En þeir koma að full-
um notum í húsaþök.
Eg er sannfærðum um að þessi flekamót eru
spor í rétta átt. Reynzla okkar hér, hefur sannað
okkur það, að með þeim er hægt að spara efni
og vinnu svo um munar, og hreint ekki lítinn
gjaldeyri. Helztu kostir þeirra eru þessir:
1. Lítil timburrýrnun.
2. Mikill vinnusparnaður við uppsetningu, frá-
slátt og hreinsun mótatimburs.
3. Réttari veggir og ódýrari múrhúðun.
4. Góð aðstaða við ísetningu glugga og járna-
binding.
5. Sparnaður á mótavír og saum.
Siglufirði í apríl 191/9.
úr félaginu og annar lést, en þrír gengu inn á aðalfund-
inum.
Kauptaxti félagsins var hækkaður úr kr. 3,35 i kr.
3,65 um klst., frá 1. júní 1948 að telja og er það í sam-
ræmi við tímakaup flestra iðnaðarmanna annarsstaðar
á landinu, að undanskildum rafvirkjum, sem um líkt
leyti var hækkaður í kr. 3.80 um klst.
Spjaldskrá var gerð yfir alla félagsmenn samkvæmt
bréfi frá Landssambandi iðnaðarmanna og send því með
umbeðnum upplýsingum.
Þann 1. ágúst s.l. voru hér í heimsókn tveir fulltrúar
frá Landssambandi iðnaðarmanna, Guðm. H. Guðmunds-
son, form. iðnráðs Reykjavíkur og Guðm. H. Þorláksson.
skrifstofustjóri Sambandsins. Var farið með þeim inn í
sveit, og tóku flestir félagsmenn þátt í förinni. Setið var
að kaffidrykkju með þeim í samkomuhúsinu þar, og
margar ágætar ræður fluttar. Á eftir áttu félagsmenn
tal við þá Guðmundana, um sín ýmsu vandamál og um
kvöldið sátu þeir fund með stjórn félagsins.
Er óhætt að fullyrða, að heimsókn slíkra mann sem
þessara er mikils virði i viðkynningu og samstarfi iðn-
aðarmanna, á hinum ýmsu dreifðu og afskektu stöðum
á landinu. Á stjórn Sambandsins og sendimennirnir beztu
þakkir skildar fyrir komuna.
Jóhann P. Guðmundsson var kjörinn fulltrúi félagsins
á 10. iðnþing Islendinga, sem hófst 25. sept. s.l. og mætti
hann þar fyrir félagsins hönd. Jóhann tók einnig þátt í
kynningarför iðnaðarmanna til Noregs í júní s.l.
Á árinu luku þessir menn sveinsprófi: Ólafur H. Jóns-
son í húsgagnasm. sem fluttist til Siglufjarðar, Einar
Ólason og Guðm. Friðriksson í rafvirkjun, Hallgrímur
Þórarinsson i vélvirkjun.
Iðnskólinn starfar eins og undanfarin ár og hefir
aldrei verið jafn fjölmennur og í vetur, alls hafa 26
nemendur verið innritaðir. Framvegis verða aðeins 2
bekkir starfræktir á hverjum vetri, 1. og 3. og 2. og 4. til
skiptis.
Gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins
og Iðnskólans. Stjórnin var endurkosin, nema Jóhann
Gunnarsson, sem baðst undan endurkosningu. Hana skipa
nú: Formaður, Valgeir Sigmundsson. Ritari, Jón S. Ein-
arsson. Gjaldkeri Björn Steindórsson. Varaformaður,
Jóhann P. Guðmundsson. Meðstjórnandi, Þorsteinn
Stefánsson.
FÉLAG PlPULAGNINGAMEISTARA I REYKJAVlK
hélt aðalfund sinn 23. jan. s.l. 1 stjórn voru kosnir:
Formaður, Grímur Bjarnason. Gjaldkeri, Loftur Bjarna-
son. Ritari, Jóh. Pálsson.
50