Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Blaðsíða 24
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949
gjarnri gagnrýni, um leið og hann hefir tekið með skiln-
ingi réttmætum aðfinnslum og ábendingum.
Eg hefi verið með honum á ánægjulegum gleðistund-
um, utan við Þjark hinna daglegu anna. Þá getur hann
verið glaðastur með glöðum og á slikum stundum er hann
jafn laus við allan tepruskap eins og hitt er víst, að
hann lætur ekki troða sér um tær að óþörfu.
Síðastliðin 25 ár hefur enginn einn maður verið jafn
umsvifamikill í samtökum iðnaðarmanna sem Helgi.
Auk þess hefir hann jafnlangan tíma með festu og óbil-
andi þreki veitt forstöðu skóla okkar iðnaðarmanna.
Skóla, sem um of hefur orðið að starfa við þrengri kost,
en æskilegt hefði verið, Þar hefur Helgi ekki hvað síst
sýnt hvað i honum býr og hvað gera má, þegar leysa þarf
erfið verkefni við óhæg skilyrði, ef annarsvegar er áhugi
og óbilandi kjarkur, samfara menntun og ábyrgð á Þvi.
sem gera þarf.
En Helga hefur ekki nægt skólir.n einn. Eg hygg að
þegar hann í Iðnaðarmannafélaginu kynntist málefnum
iðnaðarmanna, og sá hversu óendanlega margt var þar
óleyst og viðfeðma verkefni framundan, — enda svo
heppinn að á undan og samtíða eru á ferðinni menn
eins og Gísli sál. Guðmundsson, svo einn sé nefndur af
mörgum sem fremst stóðu á þeim árum innan Iðnðar-
mannafélagsins, — þá hafi honum hlaupið kapp í kinn,
og metnaður til mikilla átaka. Marka ég það af öllum
þeim fjölda trúnaðarstarfa, er hann hefur gegnt fyrir
samtök iðnaðarmanna.
Auk þess hefur Helgi gengt trúnaðar- og forustu-
störfum í mörgum öðrum félögum og samtökum, verið
ritstjóri tímarita hátt á annan áratug, skrifað bækur og
fjölda greina í blöð og tímarit, innlend og erlend.
Þið sjáið á öllu þessu að hér er á ferðinni maður, sem
vert er að loka inn eina kvöldstund á 25 ára fresti, í
glöðum hóp góðra vina.
Helgi getur með gleði litið til þess, að innan skamms
batnar öll aðsttaða við þá stofnun, sem hann er sterkast
tengdur, þegar hin nýja og veglega Iðnskólabygging
stendur fullgerð á Skólavörðuhæðinni, enda stendur
Fjárhagsráð fast og einhuga um þá' ákvörðun, að sú
bygging gangi svo ört fram, sem allar ástæður leyfa.
Þessi veglega bygging, sem um aldir á að sýna stórhug
þeirrar kynslóðar, sem nú er uppi og vafalaust verður
sterkur liður í iðnfræðslumöguleikum næstu áratuga,
hefði í dag þurft að standa fullgerð og tilbúin til notk-
unar fyrir þann íjölda iðnnema, sem nú eru í deiglunni,
og Sem afmælisgjöf til skólastjóra.
Eins og ég gat um áðan, hefur Helgi verið virkur
félagi Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík i 25 ár. 1
því sambandi heimsótti stjórn Iðnaðarmannafélagsins
hann í sumar og færði honum skjallega staðfestingu
þess, að félagið hefði veitt honum þá mestu sæmd, sem
það á yfir að ráða, með því að kjósa hann heiðursfélaga
sinn, og er hann vel að þeirri vegsemd kominn.
42
Björn K.Jónsson
skólastjóri á ísafirði
átti sextugsafmæli í
fyrrasumar. Hann er
fæddur 14. júní 1888
í Núpstungu i Mið-
firði, en ólst upp á
Torfastöðum.
Björn hefir um mörg
ár verið farsællega
tengdur málefnum
iðnaðarmanna. Verið
skólastjóri iðnskólans
á Isafirði síðan 1932 og áður kennari við hann, starfað
mikið í iðnaðarmannafélaginu og setið á flestöllum iðn-
þingum og lagt þar margt gott til málanna.
Björn vann talsvert að smíðum á yngri árum sinum
og hefur iðnréttindi í húsasmíði, þótt lengst af hafi hann
stundað kennslustörf af miklum dugnaði. Hann tók
próf frá Flensborgarskóla 1907. Fór til Danmerkur og
stundanði lýðháskólanám í Fredriksborg 1911 og 12.
Siðan var hann í Askov en varð skólastjóri barnaskól-
ans í Vestmannaeyjum 1914 og til 1920. Gerðist þá skóla-
stjóri lýðskólans í Hjarðarholti. Að Barnaskóla Isa-
fjarðar kom hann 1924 og hefur haft stjórn hans á
hendi síðan 1930. Björn hefur látið almenn mál mikið
til sín taka og ætíð verið hinn samvinnuþýði, tillögu-
góði bjartsýnismaður. Hann er alltaf ungur í sjón og
raun og á vafalaust eftir að láta margt gott af sér leiða
meðal iðnaðarmanna og annarra landsmanna.
Björn er kvæntur Jónínu Þórhallsdóttur frá Bakka á
Seltjarnarnesi. Þau hjónin eiga 4 efnileg börn.
Að lokum vil ég þakka Helga fyrir ágætt samstarf
um leið og ég lýsi því sem óbifanlegri samfæringu minni,
að vart hefði hann náð að afkasta svo miklu á þessum
tíma, sem liðinn er, án nærgætni og ástúðar sinnar góðu
konu, sem verið hefur honum hinn öruggasti lífsföru-
nautur.
Eg vil nota tækifærið, um leið og ég óska þér Helgi og
þinni ástúðlegu konu til hamingju með afmælið og það
sem liðið er, það sem þessi dagur hefur fært þér og
kvöldið á eftir að færa þér, til að biðja þig að veita
móttöku frá Iðnðaramannafélaginu blómvasa þeim. er
stendur fyrir faman ykkur hjónin á borðinu. Á hann er
greypt samskonar mynd og er á möppu heiðursskjalsins,
auk nafns Þíns og ártalanna 1923 — 9./10. — 1948. Vasi
þessi á að árétta þann hug sem félagið ber til þín, og
þess, sem þú hefir gert fyrir íslenzka iðnaðarmenn.
Að lokum vil ég biðja alla að lyfta glösum til heiðurs
frú Jóhönnu og Helga með þakklæti fyrir 25 ára starf,
fyrir gömul og ný kynni.