Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Page 31

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Page 31
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949 / j // ~?r7e./ca =4n ■ * / e ~ <4 / V kfo/h í/3 n( / / k J g! • V / V V ,,,/ / ** . Á í • . I Tirm-S-., : j . ; í fc £ Grunnflötur af flekamótum, skilveggur viö útvegg. Botnplata húss, sem slegið er upp fyrir með flekum, verður að vera alveg lárétt, ella kemur skekkjan fram á öllum hæðum, vegna þess að flekarnir eru jafnlangir. Ódýrara er að steypa gólfin rétt í byrjun, en að verða að rétta þau af síðar, með ,,pússningarlagi.“ Botnplatan og öll loft voru fullkomlega afrétt með hjálp járn- leiðara’, sem settur var ofan á miðjan flötinn, og fletirnir síðan „strauaðir“ með réttskeið. Út úr botnplötunum létum við standa steypu- járnsteina, sem allir voru í láréttri línu og með 1 metra millibili. Á þá festum við leiðarana, sem ytri flekamótin stóðu á. Þetta endurtók sig við hverja hæð, þannig að teinarnir koma þá út úr loftplötunni. Að ofan eru settir ,,leiðarar“ úr 2x4”, sem um leið eru réttskeiðar. Við uppsetningu mótanna er sjálfsagt að byrja á því að setja upp hornflekana og ganga frá þeim nákvæmlega réttum. Á botnleiðaranum að utan er fals, sem flekunum er stungið niður í, og verður neðri lína veggjanna alltaf rétt, eftir að búið er að festa botnleiðarann. Flekarnir eru aðeins negldir í efsta leiðarann með tveimur nöglum. Þegar búið er að setja upp ytri hring mótanna, eru gluggarnir festir á hann. Er það mjög fljótlegt, þar sem engir vírar eru til tafar. Haus á mótateina Þverskuröur af haus. Spetinilykill í notkun. Á sama hátt er mjög auðvelt að ganga frá járn- um í veggina, ef þeir eiga að vera járnbendir. Því næst er innra mótinu stillt upp. Til þess að birta fáist í húsið meðan það er í mótunum, eru stuttir flekar notaðir ofan og neðan við glugg- ana. Undir innri flekana settum við sniðskoma lista jafnþykka þeim, svo þægilegt væri að losa flekana, þegar slegið var frá. Botnleiðara við innri flekana höfðum við 2x4”. Innri flekana er líka sjálfsagt að byrja að reisa í hornunum. Þægilegt er að enda við glugga eða dyr. Venjulega þarf að setja borð á milli síðustu flekanna til að loka mótunum. Eftir er svo að styrkja mótin og spenna þau saman, svo veggurinn verði jafn þykkur. Tveir láréttir leiðarar, 2x4”, eru negldir lauslega báðu megin á mótin, þannig að öll hæðin skiptist í þrjú jöfn bil. Lóðréttar stoðir eru svo settar öðru megin á mótin, utanyfir leiðarana með h. u. b. 1,20 m. bili. Eru þær fyrst gegnum boraðar á tveimur stöðum. Neðsta gatið er 70 sm. frá gólfi og efra gatið 135 sm. ofar. Svo er borað úr þess- um götum í gegn um flekana og járnteinum með ró á öðrum endanum stungið í þau. Hinumegin á mótin eru settar klofnar stoðir, sem smeygt er upp á teinaendana. Þær eru gerðar út tveimur 49

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.